Imperial Stout
loka glugga
Stout er upphaflega breskur bjórstíll sem bruggaður er með ölgeri (ale) og
dökkur ristuðu malti. Bjórinn er því kolsvartur og oftast frekar
alkóhólríkur. Stout þýðir sterkur (" The stoutest beer" eða sterkasti
bjórinn). Stout getur verið, þurr, sætur, bragðbættur, bruggaður með
höfrum og svo ansi kröftugur eins og imperial stout. Dökkt ristað súkkulaði,
látlaus sætur keimur sem minnir á þurrkaða ávexti á borð við sveskjur t.d. er
algengt að finna sérstaklega í imperial stout og hinum bragðbættu stoutum.
Imperial Stout hentar sérstaklega vel sem eftirréttur eða með sætum eftirrétt.