Verandi
sameindalíffræðingur og langt numinn í fræðum læknavísindanna þá liggur áhugi
minn ekki einungis í sviði bjórvísindanna heldur einnig í heilsugeiranum.
Það er því ekki skrítið að nIcebrew reyni að sameina þessi áhugasvið í formi
bjórs. Með Three Headed Monster Ale er einmitt kominn fyrsti
"heilsubjór" brugghússins ef svo má að orði komast. Verandi næstum læknir
þá má ég ekki mæla með áfengisdrykkju en verandi bruggari og dálítið
léttklikkaður þá má ég vel mæla með Three Headed Monster Ale. Bjór þessi
inniheldur nefnilega lækningajurtina Stjörnuanis eða Illicium verum eins
og hún heitir á flottu máli. Planta þessi hefur lengi vel verið þekkt
fyrir að búa yfir lækningarmætti og má t.d. nefna ágæti hennar gegn magakveisum
og meltingarvanamálum. Plantan virðist enn fremur vera góð gegn viðrekstri
sem er sérstaklega hentugur eiginleiki í bjór. Oft virðist bjór valda
viðrekstri þegar á líður en með Three Headed Monster Ale þarf ekkert að óttast á
því sviði. Þvagræsing er reyndar einnig þekktur eiginleiki Stjörnuaniss
þannig að í samblandi við alkóhólið í bjórnum má líta á Three Headed Monster Ale
sem ágætis möguleika fyrir vaxtaræktarfólk sem vil skera niður og tapa vökva
rétt fyrir keppnir og annað. Já já svo er hósti, liðagigt, astmi og
tannpína líka eitthvað sem Sjtörnuanis vinnur á og loks má nefna að plantan er
bakteríudrepandi líkt og penicillin og jafnvel veiruhemjandi ef marka má
lyfjarisann
Roche sem notar olíur úr plöntunni í framleiðslu Tamiflu sem
er lyf gegn Influensu. Ég sé fyrir mér möguleika gegn bakteríuhálsbólgu á
borð við Streptococca hálsbólgu þar sem bæði alkóhólið í bjórnum sem og
plantan góða trufla vöxt baktería. Já þetta verður mikill drykkur og
merkilegur. Hafa verður í huga að hér er enn allt á tilraunastigi og því
ekki hægt að fullyrða neitt um virkni bjórsins fyrr en hann er tilbúinn og enn
fremur verður það að koma fram að neysla áfengis er heilsuspillandi nema hófs sé
gætt þannig er það líka með öll önnur lyf.