Hvað ber framtíðin í skauti sér?

Já hér má lesa eitt og annað um framtíðarplön hjá okkur.  Sumt verður að veruleika og annað ekki.  Það verður bara að ráðast hverju sinni.

Lengi hefur verið á dagskrá hjá okkur að brugga bjór sem mun heita eitthvað á þá leið "The Doctors Own Recipe" eða kannski "Happiness in a Bottle".  Samsetning bjórsins er ekki komin á hreint en í hann verður notuð þurrkuð planta er Hypéricum perforátun nefnist.  Planta þessi er þekkt fyrir góða virkni gegn ýmsum kvillum svo sem þunglyndi, kvíða og svefntruflunum svo eitthvað sé nefnt.  Bjórnum er því ætlað það hlutverk að bæta kæta og hressa hvern mann.
Áður en ég legg í þennan bjór mun ég klára bruggun á "Russian Roulette, Imperial Stout" en sá er af gerðinni Russian Imperial Stout og er þegar kominn af stað.  Hér er ég að stíga mín fyrstu skref í bruggun stouts og því er þetta eins konar skot í myrkri eða rússnesk rúlletta.  Vona bara það besta.

Þegar líður á árið eru uppi pælingar hjá mér að gera bjór sem ég ætla að tileinka hinum íslenska vetrarhimni og heitum pottum.  Já þegar maður er staddur erlendis þá reikar hugurinn oft heim til föðurlandsins.  Þá sér maður hlutina í öðru ljósi, eins og t.d. Norðurljósin okkar sem jú ekki er t.d. hægt að sjá hér í Danmörku.  Hvað er t.d. betra en að kúra í heitum potti einhverstaðar úti í óbyggðum á snæviþakinni vetrarnóttu, stara út í stjörnubjartan himininn þar sem Norðurljósin dansa fyrir mann á meðan maður drekkur hinn fullkomna bjór?  EKKERT?  Já ég hef hugsað mér að skapa góðan kröftugan "huggubjór" sem hæfir við slíkar aðstæður.  Sá mun líklega fá nafnið Aurora Borialis og má sjá merkimiðann hér.  Ég hef verið að reyna að ná Norðurljósunum, vona að þetta minni á slíkt.