|
Hér
kemur bjór nr tvö frá litla eld(brugg)húsinu mín
nIcebrew.
Bjór þessi er sem fyrr bruggaður með ástandið á Íslandi efst í
huga og þá sérstaklega "Oddson vandann". Bjórinn er
I.P.A og ólíkt
First Icelandic Crisis Pale Ale þá er uppskriftin í
þennan bjór smíðuð frá grunni í höfði Freys bruggmeistara.
Í glasi er þetta mattur amberlitaður bjór með þétta fallega
froðu. Í nefi eru heilmiklir amarillo humlar sem og malt
og sætur ljúfur keimur sem minnir á mandarínur eða perur.
Í bragði er um bjór með góða fyllingur að ræða, Cara Pils
maltið er hér í lykilhlutverki en einnig kemur Cara Crystal
inn með fyllingur og karamellu keim. Það er svo talverð
beiskja í honum eins og I.P.A sæmir en mætti þó vera enn
meiri. Sætur ávaxtakeimur lurir svo í bakgrunni og
minnir sem fyrr helst á mandarínur. Já bara ansi vel
lukkaður bjór sem líklega verður bruggaður aftur. |