Kaffi súkkulaði og bjór ummm!

Svo virðist sem fyrsti stoutinn okkar, Rússneskur Imperial Stout ætli að koma vel út.  Hann kúrir enn á flösku þar sem hann hefur verið að vaxa og þroskast síðan 20. ágúst.  Ætlunin er að  karlinn fái að dúsa þarna í ca mánuð til viðbótar áður en hann verður boðlegur.  Reyndar smakkaði ég hann um daginn og hann lofar góðu, ég lofaði enn fremur nokkrum heppnum Stavnsvejlingum að smakka og þeir voru mjög sáttir (Krissi, Þór, Harpa og Stefán).  Súkkulaðið kemur ekki mikið fram en þó vottar fyrir því en kaffið gerir hins vegar sitt. Já Russian Roulette Imperial Chocolate/Coffee Stout verður kannski bara nokkuð góður nIcbrew bjór eftir allt saman.  Miðinn er klár svona nokkurn veginn og má sjá hann hér til hliðar.  ATH það kom ansi lítið úr þessu bruggi eða bara rétt um 6 - 7 L þannig að um lítið upplag er að ræða.  Þeir sem vilja smakka verða því að koma sér í mjúkinn hjá Freysa eða Sigrúnu með einhverju móti....ég veit t.d. að góður bjór kemur Freysanum alltaf í gott skap :)