Weizzbier/Hveitibjór
                          loka glugga
Með hveitibjór er átt við að í stað þess að nota eingöngu maltað bygg til að gefa gerlinum sykrur þá er einnig notað hveiti á móti maltinu sem meðhöndlað er á ákveðin hátt líkt og byggið.  Hveitibjórar eru afar svalandi og mildir og alveg ómótstæðileg hressing á heitum sumardegi.  Í alla hveitibjóra er svo notaður ölsveppur á borð við Saccharomyces cerevisiae og eru þeir því öl.

Belgar eru frægir fyrir sinn hveitibjór sem kallast witbier (hvítur bjór) en hann er mildur, hvítur að lit eða ljós og gruggugur og ekki með sterkan mikinn karakter.  Oft eru notuð ýmis krydd í bjórinn svo sem coriander, cumin ofl. auk þess sem appelsínubörkur eða sítrus hvers konar er vinsæll.

Dæmi um belgískan hveitibjór er Hoegaarden.