Bock/Maibock
                          loka glugga
Bock sem upprunalega kemur frá Þýskalandi er alkóhólríkur (oftast yfir 6%), maltaður og oftast dökkur bjór af  lager gerð en getur einnig verið sterkur hveitibjór.  Bock var bruggaður á haustin eða veturna og svo drukkinn á vorin.  Doppel Bock er svo "tvöfaldur" Bock eða einfaldlega mjög sterkur Bock.  Maibock er svo bock sem bruggaður var til að fagna komu vorsins.  Kemur oftast á markað í apríl eða seint í mars.  Maibock er venjulega fölur að lit, ekki dökkur.