Amerískur Amber
loka glugga
Amber er eiginlega bjórstíll sem ekki hefur verið vel skilgreindur til
þessa. Innan
þessa stíls má finna dálítið mismunandi bjór með allt frá mildum karamellutón og
upp í bjór með ríkulegan maltkarakter og humla í góðu jafnvægi. Stundum
getur verið erfitt að átta sig á muninum milli amerísks amber og amerísks pale
ale (fölöl) og er það þá oft aðeins dekkri og meira áberandi maltkeimurinn sem
skilur þessa stíla að eða þá að amberinn felur betur humlana en pale ali-ið.