Abbay/Klausturöl
                          loka glugga
Abbaye þýðir klaustur og er notað yfir belgískan bjórstíl sem bruggaður var í klaustrum í gamla daga til að hjálpa munkunum í gegnum föstuna. Í dag er ekki allt klausturöl ekta klausturöl, í þeim skilningi að það sé bruggað í klaustrum af raunverulegum munkum. Til að greina á milli ekta og óekta klausturöls er orðið Trappist sett á það öl sem bruggað er af munkum innan veggja klaustranna. Trappist nafnið er einnig tilvísun til Trappist munkanna sem brugga bjórinn. Þetta er þó allt klausturöl í þeim skilningi að það er bruggað á sama hátt og það er yfirleitt mjög sterkt (hvað alkóhól varðar), bragðmikið, stundum sætt og oft dálítið frúttað (þurrkaðir ávextir, bananar ofl).