|
Þessi
er sko aldeilis fallega "klæddur" ef svo má orða það í stórri
flösku lokaðri með korktappa og vírneti. Miðinn er svo
afar glæsilegur og sýnir kanadíska skógarhöggsmenn sem seldu
Djöflinum sál sína í skiptum fyrir flugferð heim fyrir
jólahátíðarnar. Maudite þýðir hinir fordæmdu og er
einnig tilvísun í þessa gömlu sögu. Hér er á ferð mikið
hungang og smá rósaylmur í bland við appelsínu í nefi í
upphafi en þegar líður á bjórinn og hann volgnar má greina
þurrkaða ávexti. Í munni er hann sterkur, maltaður án þess að
vera sætur og vínlegur án þess að vera of alkóhólríkur.
Smá rúgbrauð/þurrkaðir ávextir og svo kannski appelsínubörkur
eða jafnvel grape í bakgrunni? Ögn þurr og þægilegur á
tungu með léttri beiskju. Vínandinn er ekki
fyrirferðamikill en kemur þó fram sem ögn sæta. Humlar
fjarverandi! Gott eftirbragð sem gæti kallað fram epli í
huganum? SNILLD! |