HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
gamla bjórbók
 
 
 

Bons Vaeux De la Brasserie Dupont

stíll : Belgískur SAISON (árstíðarbjór)
brugghús : Dupont Brasserie
land : Belgía
alkóhól : 9.5%
fyrst smakkað : 10.1.2004
smökkunarstaður : Reykjavík

Fyrsti bjór ársins 2004 er ekki af verri endanum því þessi fíni bjór sem heitir því skemmtilega nafni “með kveðju frá Brasserie Dupont” er með þeim sjaldgæfari í heiminum í dag og afar erfitt að nálgast hann. Í nefi er mikil sterk lykt, frúttaður og maltaður með hnetum.  Svipar mjög til Duvel.  Þetta er gullfallegur bjór í alúðlegum glæsilegum umbúðum lokuðum með korktappa og vír.  Í munni er þetta rosalegur kall, bragðmikill með eindæmum og kemur öllum skynfærum á skrið. Svipar dálítið til Duvel bæði hvað varðar froðu og bragð sem þrungið er hnetum, frútti, brauði og þægilegum humlum.  Alkóhól kemur hvergi nálægt laukunum en gerir sitt fyrir líkama og sál.    Bragðið er unaðslegt en það besta við þennan bjór er líklega eftirbragðið....ummmmmmmm það er ROSALEGT og mettandi með smá hnetukeim og mjúkum humlum.