TIL BAKA Í NÝRRI FRÉTTIR!
|
|
 |
|
Þorra Jökull - bjórbókin
18.2.09 |
|
Bjórbókin skrapp til Íslands í þeim tilgangi að smakka Þorrabjór
landsins. Jökull er einn af 4
Þorrabjórum sem Íslendingar brugga. Óhætt er að segja að þessir
bjórar eigi sér enga hliðstæðu í heiminum, amk hvað nafnið varðar.
Jökull er bara nokkuð ágætur lager. |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Íslenskur
Þorrabjór - bjórbókin 6.2.09 |
|
Nú eru komnir nokkrir spennandi Þorrabjórar í hillur ÁTVR. Um er
að ræða bjór frá Ölvisholti, Egils, Bruggsmiðjunni og Miði. Þetta er
skemmtilegt framtak. Sjálfur hef ég aðeins smakkað
Egils Þorrabjór og er hann mjög vel
lukkaður. Bjórbókin mun smakka þessa karla á næstunni. |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Monster Ale frá
nIcebrew - bjórbókin 1.2.09 |
|
Spennandi verkefni hjá nIcebrew er komið af stað. Three
Headed Monster Ale er bjór sem nIcebrew er að skapa ásamt Óla
hjá The Desertet Island og Atla bragðlauk. Bjórinn mun
einnig búa yfir lækningarmætti.
Lesa nánar. |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
  |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr bjór frá
nIcebrew! - bjórbókin 24.11.08 |
|
Nú er kominn nýr bjór frá hinu litla eld(brugg)húsi
nIcebrew.
Bjórinn sem heitir Icelandic Poverty Aid
(I.P.A) er snotur og ljúfur og vel þess virði að prófa.
Lofar góðu um framhaldið. Nánar hér! |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr íslenskur
bjór! - bjórbókin 8.11.08 |
|
Hið litla heimabrugghús
nIcebrew
hóf bruggun fyrir ekki alls löngu. Nú er fyrsti bjórinn þeirra
First Icelandic Crisis Pale Ale
tilbúinn eftir 3 vikur á flöskum. Þetta er í raun mest til gamans
gert en engu að síður bjór og ekki nóg með það, heldur er hann líka
góður. Nánar hér! |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
nIcebrew lofar
góðu! - bjórbókin 31.10.08 |
|
Hið nýja nanobrugghús,
nIcebrew
hóf bruggun fyrir ekki alls löngu. Nú er fyrsti bjórinn þeirra
kominn á flöskur, First Icelandic Crisis Pale Ale og fyrstu
smakkprufur standast væntingar. nIcebrew er angi út frá
Bjórbókinni.
Nánar hér! |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Jólasnilld! - bjórbókin 24.10.08 |
|
Ekki mörg orð, gríðarlega góður danskur jólabjór sniðinn að Belgískri
fyrirmynd. Anís, appelísnur, karamella, brenndur sykur og dásemd.
Gríðarlega vandaður og skemmtilegur jólabjór. 4.5 krúsir. Allir að prófa
(sem búa í Danmörku amk). Nánar |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórbókin tappar á
flöskur - bjórbókin 24.10.08 |
|
First Icelandic Crisis Pale Ale fer á flöskur í dag. Hér er um að
ræða fyrsta bjór sem Bjórbókin
bruggar undir nafninu (n)Icebrew. Áfengismagn verður
vonandi um 6% og vonandi verður þetta drekkandi. Geri þó engar
væntingar að svo stöddu. |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórbókin bruggar - bjórbókin 24.10.08 |
|
Já nú er loksins komið að því, Bjórbókin opnar sjálf sitt eigið
brugghús. Að vísu lítið í sniðum (eldhúsið) en stefnt er að stórum
bjórum. Já 6. besta brugghús heims Mikkeller byrjaði nákvæmlega
svona, afhverju ekki Bjórbókin. Nánar um
þetta
hér! |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Móri stenst
væntingar - bjórbókin 26.09.08 |
|
.Já þvílík kátína, Móri hefur
laggst undir erfiða smásjá Bjórbókarinnar og viti menn hann stóðst
prófið með "stæl". Það var Óli meðlimur
Kidda sem
kom með nokkur eintök hingað út til Danmerkur. Takk fyrir það.
Móri er málið, líklega besti bjór Íslands núna!. |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Móri er mættur - bjórbókin
4.09.08 |
|
Já nú er bjór nr tvö kominn frá Ölvisholti sem gerir besta íslenska
bjórinn enn sem komið er.
Móri heitir bjórinn og er af gerðinni öl. Í hann er notað
7 mism malttegundir og 4 gerðir humla. Bjórbókin smakkaði Móra á
meðan hann var í þróun í júlí
og lofaði hann þá góðu. Vonum að hann hafi ekki breyst of mikið síðan
þá. |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórbókin í
Ölvisholt Brugghús - bjórb. 5.09.08 |
|
Bjórbókin heimsótti í sumar hið snotra íslenska örbrugghús
Ölvisholt Brugghús en
það er þaðan sem besti bjór Íslands kemur, Skjálfti.
Það var vel tekið á móti okkur og við fengum m.a. að smakka nýjan bjór
sem er í smíðum. Nánar hér! |
|
|
------------------ |
---------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Magnaður lager - bjórbókin 20.08.08 |
|
Fyrir stuttu smakkaði ég einn besta IPA í langan tíma. Nú smakkaði ég
annan bjór frá sama brugghúsi, Skovlyst breyghus, sem verður að teljast
einn besti lager/pilsner sem ég hef smakkað.
Skovlyst Birke Bryg - 4.5 krúsir
takk fyrir! |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Frábær IPA
- bjórbókin 20.08.08 |
|
Bjórbókin smakkaði það sem líklega verður að kallast besti IPA hingað
til. Skovlyst IPA heitir bjórinn og
er alveg gríðarlega mjúkur og ljúfur India Pale Ale. Bjór þessi
fékk auk þess verðlaunin besti IPA ársins í Danmörku 2008. Snilld
- 5 krúsir! |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Gullfoss í flösku
- bjórbókin 08.08.08 |
|
Bjórbókin smakkar Gullfoss í
flösku. Loksins kominn. Bjórbóki smakkaði bjórinn í dag
ásamt nokkrum af landsins mestu bjórgæðingum. Bjórbókin var pínu
ósatt en almennt fékk hann góðar viðtökur. Frábær bjór fyrir
íslendinga, dálítið léttmeti fyrir bjórgæðinga en sem lager, MJÖG GÓÐUR. |
|
|
------------------ |
----------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Heimsókn í ÖB
Brugghús- bjórbókin 30.07.08 |
|
Bjórbókin heimsótti hið snotra íslenska örbrugghús Ölvisholt Brugghús en
það er þaðan sem besti bjór Íslands kemur, Skjálfti. Það var vel
tekið á móti okkur og við fengum m.a. að smakka nýjan bjór sem er í
smíðum. Nánari pistill er væntanlegur hér. |
|
|
------------------ |
---------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr bjór frá ÖB- bjórbókin
20.07.08 |
|
Bjórbókin hefur staðfestar fréttir fyrir því að Ölvisholt Brugghús sé um
þessar mundir að fínstilla nýja bjór sem kemur á markað á næstu vikum
eða mánuðum. Um er að ræða einhverskonar blöndu af
IPA og skosku öli. Nafnið er ekki komið enn né dagsetning.
Fylgist með hér á Bjórbókinni. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Risi verður til
- bjórbókin 15.07.08 |
|
Nýr ofurrisi í bjórheiminum hefur orðið til. Í gær tilkynnti hið
belgíska brugghús InBev
og ameríska AB samruna sinn. Með því hefur langstærsta
bruggsamsteypa veraldar litið dagsins ljós. Þetta þýðir að sullið
Budweiser er nú orðinn bróðir t.d. Leffe og Hoegaarden
Lesa nánar. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Íslenskur Stout
bara góður- bjórbókin 25.06.08 |
|
Jæja þá kom að því að ég fann tíma til að smakka þennan fyrsta stout
Íslands. Viking Stout. Já viti menn þessi bjór er bara
nokkuð góður og gerir stout
stílnum góð skil. Hér er samt um mildari útgáfu að ræða og
ætti að ganga vel í alla Íslendinga með smá kjark. Sjá nánar hér.
Lesa nánar. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Gullfoss bjór - bjórbókin
12.06.08 |
|
Já nú er heldurbetur farið að birta yfir hinum íslanska bjórmarkað.
Já því nú í júlí kemur á markað nýr íslenskur bjór frá nýju íslensku
örbrugghúsi, Ölgerð Reykjavíkur. Bjór þessi mun bera hið virðulega
og íslenska nafn
Gullfoss og er bruggaður eftir
skandinavísku lager hefðinni. Það besta við þetta allt saman er að
bruggmeistari Ölgerðarinnar er enginn annar en bjórmógúllinn Anders
Kissmeyer sem er snillingurinn á bak við
Norrebro
Bryghus sem skapar einmitt einn besta bjór Danmerkur að mati
Bjórbókarinnar. Já ég verð bara að segja að nú er ég orðinn
spenntur. Hér kemur fréttayfirlýsing Ölgerðarinnar
Bruggmeistari Ölgerðar Reykjavíkur
heitir Anders Kissmeyer og er heimsfrægur meðal áhugafólks um bjór og
margverðlaunaður. Anders var gæðastjóri hjá Carlsberg í Danmörku í tæp
20 ár en á nú og rekur eigin bjórgerð og matsölustað í Kaupmannahöfn sem
heitir
Norrebro Bryghus og er mörgum Íslendingum vel kunnur. Ölgerð
Reykjavíkur hefur gert framleiðslusamning við Bruggsmiðjuna á
Árskógssandi um að framleiða Gullfoss eftir uppskrift Anders.
Undirbúningur hefur staðið lengi
en hófst með því að búinn var til listi með nöfnum 5 bestu
bruggmeistara Evrópu og ákveðið var að reyna að fá einn af þeim til
samstarfs. Nafn Anders var efst á listanum og í fyrstu hafði hann
lítinn áhuga að vinna með okkur enda meira en nóg að gera hjá honum
við eigin bjórgerð, við báðum hann um að taka á móti okkur í
Kaupmannahöfn og ræða málið frekar. Okkur tókst að sannfæra hann um
að vera með í verkefninu enda markmiðið háleitt, að búa til besta bjór
Evrópu með því að hafa uppá besta hráefninu hvar sem það væri að finna
og nota íslenska vatnið, betra gerist það ekki.
Markmið Ölgerðar Reykjavíkur er
að bjóða upp á ferskvöru og hágæða bjór.
|
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Anchor á Íslandi - bjórbókin
26.05.08 |
|
Nú er maður kominn til Íslands fyrir sumarið. Fljótlega eftir komu
mína hingað leit ég við í vínbúðina og viti menn, þar rakst ég á alveg
ljómandi góðan amerískan bjór. Sá nefnist
Anchor Steam Beer og var
einmitt einn af smakkbjórum síðasta Kiddakvölds. Mæli eindregið
með þessum. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Gleðilegt sumar! - bjórbókin
6.05.08 |
|
Nú er gaman að búa í Danmörku því frá mínu uppáhalds brugghúsi hér,
Nørrebro
Bryghus, er kominn þessi dásamlega sumarkveðja. Glænýr
á flösku, Stuykman Wit. Já öskrandi hveitibjór að
belgískri fyrirmynd. Hlakka mikið til að smakka kauða! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Smakkkvöld Kidda - bjórbókin
5.05.08 |
|
Bjórmenningarfélagið Kiddi tók sig til og smakkaði nokkra vel valda
bjóra frá bandarískum örbrugghúsum. Bjórbókin var á staðnum. Hér
má lesa nánar um þennan atburð -
nánar! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Stout hvað er nú
það? - bjórbókin 26.04.08 |
|
Ég fæ oft þessa spurningu og finn hvað menn eru mikið að rugla með
staðreyndir varðandi þetta. Dökkur bjór er bara allur eins halda
sumir en þvílíkar pælingar geta ekki verið fjarri sannleikanum.
Hér hef ég rissað upp lítinn pistil um stout þennan aldna enska bjórstíl -
nánar! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórbókin í
Morgunblaðið - bjórbókin 21.04.08 |
Já núna síðastliðinn sunnudag var Bjórbókin hvorki meira né minna valin
vefsíða vikunnar í Morgunblaðinu! Já þar fær Bjórbókin fallega
umfjöllun og vil ég hér með þakka þeim er þar skrifar en sá kom ekki
fram undir nafni.
Hér má sjá hvernig þetta leit út! -
nánar! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Innreiðin er
hafin! - bjórbókin
11.04.08 |
|
Já enn einn bandarískur bjór í safnið.
Horn Dog Barley Wine
frá
Flying Dog brugghúsinu í Colorado.
Þetta er lítið brugghús með stórt úrval af bjór. Horn Dog er minn
fyrsti frá þeim og lofar bara nokkuð góðu.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bandarískur bjór
já takk! - bjórbókin
11.04.08 |
|
Bjórbókin hefur lengi haft plön um að hella sér út í hinn
víðáttumikla bandaríska bjórmarkað. Ég rakst á þrjá karla frá hinu
rómaða örbrugghúsi Rogue og ákvað að hefja ferðina löngu inn á þessar
nánast ókönnuðu slóðir. Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Apríl gabb! - bjórbókin
2.04.08 |
|
Fréttirnar um Mikkeller í gær voru að sjálfsögðu dálítið
ljótt aprílgabb því það væri dásamlegt að geta fengið Mikkeller bjór á
Íslandi. Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr bjór á
Íslandi! - bjórbókin 1.04.08 |
|
Þær stóru fréttir voru að berast að nú sé hægt að fá
Mikkeller bjór á Íslandi. Mikkeller er eitt besta brugghús
Danmerkur um þessar mundir. Bjórinn fæst nú í Heiðrúnu á einstöku
tilboði meðan lager endist. 50 kr 60 cl flaska.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Hvað er páskabjór?
- bjórbókin 23.03.08 |
|
Það hefur lengi tíðkast að brugga bjór yfir páskahátíðarnar sem er
ögn frábrugðinn hinum hefðbundna bjór sem á markaðnum er. Líklega er
hér um danska hefð að ræða.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Páskabjórinn - bjórbókin 19.03.08 |
|
Já nú er tími páskanna og þá gerist það eins og um jólin,
já bjór af ýmsum toga sem bruggaður er til heiðurs páskanna flæðir um
allar jarðir. Um þessar mundir standa yfir smakkanir á þessum bjór og
munu þeir detta hér inn um síðir. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Kongens Bryghus
tekið fyrir - bjórbókin 15.03.08 |
|
Kongens Bryghus er fjörgamalt danskt örbrugghús sem
á rætur sínar að rekja aftur til 1442. Brugghúsið var enduropnað
árið 2007 og bruggar nú 4 fastar bjórtegundir. Bjórbókin tók sig
til og smakkaði allt sem brugghúsið hefur að bjóða.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Kaldi Páska -
bjórbókin 12.03.08 |
|
Kaldi Páskabjór
er 3. bjórinn sem ég smakka frá Bruggsmiðjunni og hann reyndist ekki
standast mínar væntingar. Engu að síður ágætis bjór og mun ganga
vel í flesta Íslendinga held ég. Vantar þó allan kraft og
karakter.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Skjálfti besti bjór Íslands? -
bjórbókin 10.03.08 |
|
Jæja loksins komst ég yfir hinn nýja bjór
Skjálfta frá Ölvisholti.
Orðið á götunni er að hér sé einfaldlega besti bjór Íslands í flösku
kominn. Bjórbókinn kannar hér með hvort þau orð séu rétt.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Gleðilega Páska! -
bjórbókin 8.03.08 |
|
Nú líður að páskum og tímabært að fara smakka eitthvað af
nýjum páskabjór. GB er fyrsti nýji páskabjórinn sem ég smakka þetta
árið. Þetta er bara ágætur bjór en alls engin snilld.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Svakalegur karl! -
bjórbókin 6.03.08 |
|
Ég smakkaði um daginn mjög sérstakan bjór,
North Bridge Extreme, frá
Nørrebro Bryghus.
Um er að ræða sérstakan tripel IPA að kanadískum uppruna. Þetta er
alveg magnaður bjór og ægilega sorglegt að ekki sé hægt að fá hann á
flöskum nema í brugghúsinu.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Besti Lager í heimi? -
bjórbókin 4.03.08 |
|
Eftir að hafa hugsað þetta nánar og prófað og endursmakkað
þá hef ég komist að því að í þau ár sem ég hef smakkað bjór þá hef ég
ekki lent á eins mögnuðum lager og Nørrebro
Bryghus New York Lager. Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Gleðilegan bjórdag -
bjórbókin 1.03.08 |
|
Já til lukku með daginn bjórunnendur nær og fær. Hvað
er betra á svona degi en að fá glænýjan íslenskan bjór á markað. Já
skjálftinn frá Ölvisholti er kominn en er því miður
uppseldur. Vonandi kemur nýr "skammtur" innan tíðar. Spennandi! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr frá GB í bókina -
bjórbókin 27.02.08 |
|
Bjórbókin heldur áfram rannsókn sinni á bjór frá hinu
danska
Gourmetbryggeri (GB). Að þessu sinni er það
Barley Brew. Bjórinn bætist í
hóp þeirra 5 sem Bjórbókin hefur áður smakkað frá þeim -
sjá hér! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Carsberg án PILSNERS -
bjórbókin 10.02.08 |
|
Nú er breytingar í vændum hjá Carlsberg því þeir ætla að
hætta með pilsner textan á umbúðum sínum. Bjórinn verður sá sami
samt sem áður. Spurning hvað neytendur segja við þessu?
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Magnaður lager -
bjórbókin 08.02.08 |
|
Menabrea Ambrata
er bara hinn magnaðasti lager af amber gerð. Það er alltaf gaman
að detta niður á svona góðan lager inn á milli. Þessi er sko þess
virði að smakka nammi namm!.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Kaldi Páskabjór! -
bjórbókin 07.02.08 |
|
Svo virðist sem Bruggsmiðjan ætli að brugga sérstaka útgáfu
af Kalda fyrir Páskana. Bjórinn mun verða bruggaður í takmörkuðu magni
þannig það er um að gera að fylgjast vel með hillum ÁTVR.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nørrebro
Skargaards Porter -
bjórbókin 01.02.08 |
|
Já loksins kom að því, Bjórbókin
koms yfir porterinn frá Nørrebro
Bryghus sem jafnframt er eitt af þrem uppáhalds brugghúsum
Bjórbókarinnar. Þetta er annars porter eins og porter á að vera og
líklega fínn fyrir þá sem kunna vel við stílinn.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Þorra Kaldi -
bjórbókin 01.02.08 |
|
Bjórbókin vill bara benda landsmönnum á að
Bruggsmiðjan hefur
skapað bjór fyrir Þorrann. Bjór þessi nefnist Þorra Kaldi
og ku vera skemmtileg tilbreyting. Bjórbókin hefur þó enn ekki
bragðað á þessum spennandi bjór en vonast til að að því verði. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Enn einn nýr frá Íslandi -
bjórbókin 31.01.08 |
|
Jökull bjór frá Stykkishólmi bætist brátt í hóp nýrra bjóra frá Íslandi.
Bjórbókin vonast til að ekki sé um enn einn lagerinn að ræða heldur
eitthvað spennandi öl (ale). Hins vegar er dálítið spennandi að
sjá hvað kemur út úr þessu þar sem bruggmeistarinn er fyrrum
mjólkurfræðingur hmmm.
Meira um þetta! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr frá
Nørrebro -
bjórbókin 28.01.08 |
|
Svo virðist sem nýr bjór sé kominn á flösku frá
Nørrebro Bryghus,
Kings County Brown. Ef þetta
er rétt þá vonast ég til að komast í þennan bjór sem allra allra fyrst.
Lýsingin á honum er nefnilega afar lofandi.
Meira um þetta! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Dýrasti bjór heims -
bjórbókin 26.01.08 |
|
Dýrasti bjór veraldar fæst frá og með morgundeginum á útvöldum stöðum í
Danmörku. Bjórinn kemur frá Carlsberg og heitir Jacobsen
Vintage nr 1, 2008. Flaskan kostar litlar 2008 danskar kr
eða yfir 20.000 ísl kr. Aðeins eru framleiddar 600 flöskur.
Meira um þetta! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Gourmet kvöld -
bjórbókin 24.01.08 |
|
Í tilefni þess að nú líður senn að því að fyrsti íslenski "GB" bjórinn
komi á markað á klakanum ákvað Bjórbókin, ásamt einum virkasta meðlim
Bjórmenningarfélags Kidda um þessar mundir, Óla Helga að kanna nánar
GB línuna . Meira um þetta! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Skjálfti á Íslandi -
bjórbókin 24.01.08 |
|
Já nú er loksins komið að því. Nýr íslenskur bjór er alveg að
detta inn á markað. Skjálfti mun hann heita og kemur frá
brugghúsinu Ölvisholt Brugghús sem er glænýtt brugghús byggt með aðstoð
hins danska Gourmet Bryggerie.
Meira um
þetta! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Frábærar fréttir fyrir
Árósarbúa -
bjórbókin 19.01.08 |
|
Nú hefur hið stórbrotna brugghús
Nørrebro
Bryghus plön um að opna útíbú í Árósum. Þetta eru góðar
fréttir fyrir bjórunnendur í Árósum og mun
Bjórmenningarfélagið Kiddi
án efa kætast. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Mikkeller enn og aftur -
bjórbókin 18.01.08 |
|
Þeir virðast endalaust geta komið manni á óvart þessir pörupiltar hjá
Mikkeller. Hér koma þeir með enn eitt undrið. Vinabrugg sem
er sambland af sterkum belgískum blond og öflugum humluðum Mikkeller
bjór. Struise Mikkeller heitir
kauði og er bara ansi fínn. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Enn einn jólabjórinn -
bjórbókin 15.01.08 |
|
Já ég er enn að setja inn jólabjóra hér inn. Þennan smakkaði ég
með Valla félgaga mínum í nóvember. Bara nokkuð góður bjór frá
Belgíu. Bjórinn ber það merkilega nafn
't Smisje Kerst og fær hjá mér 4 krúsir. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nákvæmlega svona á bjór að
vera -
bjórbókin 12.01.08 |
|
Já hörð orð en rétt!
Westvleteren 8 er einfaldlega það góður bjór að ég þori fullkomlega
að kasta þessu út svona. Þetta er bara dásamleg upplifun alla
leið. Frábært dæmi um góðan belgískan munkabjór. Eitthvað
sem allir verða að prófa á lífsleiðinni! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Ceres ekki meir!
-
bjórbókin 10.01.08 |
|
Já nú er það búið! Ceres brugghúsið mun leggja niður störf í lok ársins
2008. Það þýðir að stærsta og elsta brugghús Árósa verður ekki
meir. Bjórinn mun hins vegar áfram vera bruggaður í Óðinsvéum og
Fakse. Ástæðan, segja talsmenn Royal Unibrew, eru
peningaörðuleikar og harðari markaður.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Kampavín bjórheimsins
-
bjórbókin 19.12.07 |
|
Já þetta er ekki jólabjór en samt inniheldur hann dálitla jólatóna.
Ég smakkaði þennan karl í nóvember og var fyrst núna að skella honum
inn. Frábær og spes bjór.
Deus
Brut Des Flandres. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Jól í flösku!
-
bjórbókin 14.12.07 |
|
Mikkeller gera ansi ljúfan og skemmtilegan jólakarl þetta árið
Santas Little Helper 2007.
Bjórinn er heilmikill laukatryllir og býður uppá mikið verkefni fyrir
öll skilningarvit. Dálítil sæta í bland við malt og humla.
Gríðarlegt alkóhólið er svo varla merkjanlegt. Frábær jólabjór
fyrir þá sem þora. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Hvar eru jólin?
-
bjórbókin 13.12.07 |
|
Það eru undarlegir hlutir að gerast í Danmörku þetta árið. Já ég
veit ekki hvort menn hafa tekið eftir því en einn besti bjór Carlsbergs
er ekki enn kominn út. Já ég er að tala um jólabjórinn þeirra
Carsl Jul? Hvað er hér á seyði ætla
þeir sér bara að láta sér nægja að bjóða Tuborg Jóla? Það
eru sorglegar fréttir ef satt er. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr íslenskur bjór
-
bjórbókin 26.11.07 |
|
El Grillo er nýr íslenskur bjór sem bruggaður er af Egils
fyrir Ölgerðina El Grillo ehf ef ég hef skilið það rétt. Þetta er
ágætis lager á léttu nótunum en svo sem ekkert nýtt hér á ferð.
Það er þó alltaf gaman þegar nýr bjór er skapaður á íslandi. Gott
framtak þó svo að öl (ale) hefði verið skemmtilegra.
Meira |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórgúrúinn er látinn
-
bjórbókin 03.09.07 |
|
Michael Jackson sem líklega verður að teljast heimsins besti og
trúfastasti bjórgæðingur er dáinn. Michael dó á heimili sínu í
London þann 30. ágúst síðastliðinn. Já maðurinn sem opnaði augu
bjórbókarinnar fyrir veröld bjórsins er farinn..þetta er undarleg
tilfinning. Hér má lesa
nánar um
þetta mál. Vonandi var það ekki lifrin sem gaf sig! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
3 nýjir frá Nørrebro
-
bjórbókin 27.08.07 |
|
Já þetta verða nú að teljast ein bestu tíðindi í langan tíma.
Snillingarnir frá Nørrebro bjóða okkur nú tvo
nýja bjóra á flösku og svo er sá þriðji væntanlegur innan skamms.
Ég hef reyndar ekki smakkað neitt af þessu enn sem komið er en úr því
verður bætt og það alveg á næstu dögum.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Gourmet öl til Íslands -
bjórbókin 05.07.07 |
|
Í upphafi 2008 þá stendur til að opna nýtt brugghús hér á Íslandi að
fyrirmynd hins danska örbrugghúss
Gourmetbryggeriet. Þetta er skemmtileg nýbreytni og fagnar
Bjórbókin þessu. Reyndar hef ég aðeins smakkað einn
bjór frá GB og sá var ansi
slakur.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Hressandi sumarsmellur -
bjórbókin 08.06.07 |
|
Bjórbókin smakkaði þennan fína
kriek um daginn. Hér er um alvöru kriek að
ræða, þe.a.s. ekki eitthvað sykurbætt sull. Sérstakt er svo einnig
að alkóhólið er upp í 6.5% sem er óvenjulegt fyrir kriek.
Alkóhólið finnst hins vegar ekki í bragði.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Enn einn IPA -
bjórbókin 31.03.07 |
|
Þar sem ég er á einhverju I.P.A. tímabili í lífi mínu þá ákvað ég strax
að prófa þennan þegar ég sá hann í hillunum. Danskur I.P.A er
nefnilega ansi vel lukkaður bjór. Þessi, Brewpup København
Atlantic IPA er fyrsti bjór þeirra sem kemur á flöskur.
Þetta er I.P.A eins og þeir gerast bestir. Namm.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Fyrsta örbrugghús Íslands -
bjórbókin 23.03.07 |
|
Það var kominn tími á að fá að bragða á afurð fyrsta og eina örbrugghúss
Íslands, Bruggsmiðjunni. Bjór þeirra sem þeir kalla
Kalda er bruggaður að tékkneskri fyrirmynd og er bara hinn fínasti
pilsner. Bjórbókin fagnar tilurð Bruggsmiðjunnar og bíður spent eftir
nýjum bjór frá þeim og þá vonandi úr ölfjölskyldunni :) .
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Tveir nýjir -
bjórbókin 18.03.07 |
|
Ég smakkaði nýjan danskan I.P.A.
sem var allt í lagi og svo alveg glænýjan bjór frá Liefmans er
Abdis kallast. Abdis er er
ný klausturlína frá Liefmans, það er því hægt að fá blond, dubbel og svo
tripel. Tripelinn þeirra er
alveg magnaður og því háar væntingar til hinna tveggja.
Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bráður bani -
bjórbókin 16.03.07 |
|
Ég hef alltaf verið hrifinn af hinum belgíska
gueuze og hér er eitt dæmi um vel lukkaðan bjór af þeim stíl.
Mort Subite Gueuze er
ansi þægilegur og svalandi bjór sem gengur vel á heitum sumardegi.
Pöbbinn sem bjórinn dregur
nafn sitt af er einnig í topp klassa og gaman að heimsækja ef maður á
leið um Brussel. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Ljúfur nýr páskabjór -
bjórbókin 02.03.07 |
|
Hér er enn ein rósin í hnappagat Nørrebro Bryghus,
Påske Bock. Já þessir
meistarar virðast bara ekki geta klikkað þegar að bjórnum kemur.
Þessi fíni bjór er amk enn eitt dæmið um vel lukkaðan bjór. Fínn
matarbjór og notalegur yfir páskana. Hmmm hvernig ætli hann sé með
páskaegginu? Nánar. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Til hamingju með daginn -
bjórbókin 01.03.07 |
|
1. mars er mikill dagur fyrir bjórunnendur á Íslandi og ástæða til að
fagna því þennan dag árið 1989 var bjórbanni aflétt á Íslandi og þar með
hófu Íslendingar ferð sína inn í siðmenninguna. Nú 18 árum síðar
hefur hins vegar ekki mikið gerst í bjórmenningunni en við vonum að
breytingar séu handan við hornið...Bjór er ekki bara bjór! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Sérstakur sælkeri -
bjórbókin 17.02.07 |
|
Já mikil ósköp, nú er lítil bjórbók aldeilis hlessa? Hér er sko
furðulegur og jafnframt ansi ljúfengur bjór á ferð, Innis and Gunn Oak
Age Beer. Eins og nafnið bendir til þá er hér bjór sem hefur legið
í eikartunnum áður en honum er tappað á flöskur. Útkoman er
furðulega góður bjór með karamellu/toffee keim með kókos og þægilegum
humlum. Namm!. Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
IPA bjórstíllinn -
bjórbókin 20.01.07 |
|
Ég hef verið að "endurskoða" bjórstílinn IPA eða
Indian Pale Ale
að undanförnu og hef komist að því að þessi stíll á bara nokkuð vel við
mig. Nýverið prófaði ég tvo danska IPA, frá
Mikkeller og
Nørrebro,
sem komu mér skemmtilega á óvart og nú er það bandarískur IPA,
East India Pale Ale, sem ég vonast til
að standist væntingar. Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Fyrsti bjór ársins -
bjórbókin 12.01.07 |
|
Fyrsti bjór ársins 2007 er jólabjór frá litlu brugghúsi á Grænlandi er
kallast Greenland Brewhouse. Brugghús þetta státar af því að nota
tærasta vatn sem um getur í bjóra sína. Þeir bræða nefnilega
sjálfan 2000 ára Grænlandsísinn. Jólabjór þeirra er einn ef þremur
og er bara ágætasti karl. Nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Egils Premium bjór fluttur til Þýskalands -
mbl
9.1.07 |
|
Í kjölfar þess að
Egils Premium hlaut
verðlaun á European Beer Star keppninni í Bæjaralandi í Þýskalandi hefur
aðalstyrktaraðli þeirrar hátíðar óskað eftir því að fá að flytja inn
Egils Premium bjór.
Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar, segir
í tilkynningu að þetta sé mikill heiður fyrir sig og sitt fólk,
sérstaklega bruggmeistarann Guðmund Mar Magnússon.
„Fulltrúar BayWa AG í München höfðu samband við
okkur eftir Beer Star keppnina og óskuðu eftir að fá að flytja inn
heilan gám af Egils Premium til að nota við kynningarstörf. Miðað við
bjórframleiðsluna á þessu svæði þá er þetta eins og við værum að flytja
kaffi til Brasilíu eða ísmola til Grænlands," segir Andri Þór í
tilkynningunni. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórframleiðendur komast að „sögulegu
samkomulagi" - mbl 8.1.07 |
|
Tékkneska brugghúsið Budejovicky Budvar og
bandaríski bjórframleiðandinn Anheuser-Busch hafa komist að „sögulegu
samkomulagi” að eigin sögn um að flytja tékkneska bjórinn Budvar til
Bandaríkjanna. Fyrirtækin tvö hafa um
árabil barist um
yfirráðarétt á bjórheitunum Budweiser og Budvar, en bæði hafa þau
framleitt bjór síðan á 19. öld.
Samkvæmt samkomulaginu mun Anheuser-Busch flytja inn
Budvar bjórinn héðan af, en hann hefur verið seldur í Bandaríkjunum
undanfarin fimm ár undir merkinu Czechvar. Vinsældir innflutts bjórs
hafa aukist mikið í Bandaríkjunum undanfarin ár.
Jiri Bocek, forstjóri Budvar, kallar samninginn
sögulega breytingu á samskiptum fyrirtækjanna, en þau eiga nú í um 40
málaferlum um allan heim, en Anheuser-Busch, sem er mesti
bjórframleiðandi Bandaríkjanna hefur barist fyrir einkaleyfi á merkjunum
Budweiser og Budvar í rúma öld.
Budejovicky Budvar var stofnað árið 1895 í Ceske
Budejovice, sem Þjóðverjar kölluðu Budweis. Þar hefur bjór verið
bruggaðir síðan árið 1265.
Stofnendur Anheuser Busch stofnuðu brugghús sitt í
St. Louis í Bandaríkjunum árið 1852 en hófu að selja bjórinn Budweiser
árið 1876 þar sem þýskir innflytjendur þekktu nafnið. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórgæðingar í Norðurhöfum
- bjórsullur 4.1.07 |
|
Nú fyrir skömmu átti sér stað nyrsta bjórsmökkun sem sögur fara af (amk
sem bjórbókinni er kunnugt um) þegar nokkrir góðvinir bjórbókarinnar
settust niður til að dreypa á nokkrum velvöldum og heimfluttum bjórum.
Atburður þessi fór fram á Húsavík. Forsprakki þessa hóps, Bjórsullur
nokkur skráði allt sem fram fór niður og
hér er hans saga. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Gleðileg Jól! -
bjórbókin 26.12.06 |
|
Gleðileg jól allir sem einn. Hér er enn einn jólabjórinn
Val-Dieu Biére de Noél.
Smakkaði hann reyndar þann 18.12. en set hann samt inn núna. Þetta
er mjög ljúfur jólakarl og ekkert of sterkur. Fínt að fá sér eitt
eða tvö glös af þessum t.d. á áramótum eða kannski fyrir háttinn á
aðfangadag. Nánar. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Heja Norge! -
bjórbókin 18.12.06 |
|
Norðmenn kunna líka brugga bjór og þar í landi má finna nokkur
"mikrobrugghús" sem brugga afbragðs bjór ef marka má manna róm.
Þessi karl, AAss Juleøl
er norskur jólabjór og jafnframt minn fyrsti norski bjór satt að segja.
Já þetta er bjór af
bock stíl og bara alls ekki svo vitlaus.
Nánar. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Hvar er jólabjórinn? -
bjórbókin 18.12.06 |
|
Já úrvalið er ekki uppá marga fiska heima á klakanum þegar að
jólabjórnum kemur. Íslendingar geta valið á milli þriggja
íslenskra jólabjóra sem má nú teljast ágætt. Þetta eru þó allt
saman léttir lagerbjórar. Hinn danski jólatuborg er svo einnig á
boðstólum en aftur er um að ræða léttan lager sem reyndar í ár er
hræðilegur. Það hefur eitthvað misfarist hjá þeim Dönum þetta
árið. Það sem vantar er eitthvað af hinum rómuðu jólabjórum úr
ölfjölskyldunni, svo sem
St Feuillien,
Youn'g Christmas
Pudding Ale eða
álíka.
Reynar var einu sinni hægt að fá
Delirium Christmas
sem var ágætur og í fyrra man ég eftir að
Samuel Adams Winter Lager lét sjá sig í ÁTVR, en reyndar í
mýflugumynd því hann kláraðist löngu fyrir jól. Reynar er þetta
einmitt vandamálið við þá fáu jólabjóra sem fáanlegir eru í ÁTVR, þeir
klárast löngu fyrir jól vegna þess að Egils og Viking og aðrir sem hlut
eiga í máli eru svo logandi hræddir við að sitja uppi með smá lager.
Já þá er betra að brugga bara smá sýnishorn til að geta sagst hafa
bruggað jólabjór...ægilega sorglegt!En já hvað er til ráða þegar
ástandið er sem raun ber vitni? Ég held að maður verði annað hvort
að koma með sinn jólabjór sjálfur inn í landið (sem ég reyndar mun gera
í ár) eða að reyna finna einhvern bjór sem gæti gengið í hlutverk
jólabjórs. T.d. held ég að
Westmalle Dubbel
gæti smellpassað sem jólabjór og það er bjór sem á víst að fást á
Íslandi í dag. Westmalle Dubbel er sko ekkert slor og kemur frá
einu af 6 Trappist munkaklaustrum veraldar. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr Leffe! -
bjórbókin 12.12.06 |
|
Hó hó hó, nú hefur Leffe fjölskyldan stækkað um einn bjór,
Leffe 9. Já bjór
þessi er 9% karl og á líklega að vera í anda hinna belgísku tripel
bjóra. Þetta er ágætur karl en samt ekkert sérstakur. Er í
raun eins og Leffe Blond nema bara með öflugari bragð og alkóhól er
meira áberandi. Nánar. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Jólabjórinn -
bjórbókin 7.12.06 |
|
Jæja þá eru að koma jól enn einu sinni sem þýðir að JÓLABJÓRINN er
kominn í hillurnar. Hér í Danmörku er úr nóg af taka. Ég
t.d. smakkaði þennan magnaða jólabjór sem kallast
La Binchoise Speciale
Noel. Þetta sér í lagi magnþrunginn bjór með mikinn
karakter. Mæli eindregið með þessum yfir jólin (fyrir þá sem tök
hafa á) . Lesa nánar! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Jæja smá líf -
bjórbókin 29.06.06 |
|
Jæja er ekki kominn tími á smá hreyfingu hérna. Jæja ég smakkaði
þennan margrómaða stout sem Micheal Jackson sjálfur mælir eindregið með.
Já ég er sjálfur sáttur við karlinn þó svo að venjulega sé stout ekkert
fyrir mig.Já Lion Stout
frá Sri Lanka er bara ansi ljúfur og get
ég því vel mælt með honum. Góður sælkeri með krydduðum mat.
Lesa nánar! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Síðasta smökkunin
- bjórbókin
06.06.06 |
|
Já dagur Djöfulsins í dag og heimsendir yfirvofandi samkvæmt spámönnum.
Ekki seinna vænna að smakka nýjan bjór. Hver veit nema þetta sé
síðasta smökkunin. Í tilefni dagsins smakkaði Bjórbókin því nokkra
spennandi karla og þar á meðal
Cookie Beer sem er belgískur
"kökubjór". Mjög spes. Lesa nánar! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr frá Ceres
- bjórbókin 31.5.2006 |
|
Í fyrra var það Ceres Royal Red
sem tók hinn almenna danska lagersullara með stormi en nú er það
Ceres Royal Weiss.
Þessi bjór sem kom út fyrir fáeinum vikum er sumarbjórinn í ár frá
Ceres. Bjór þessum er ætlað það hlutverk að vera svalandi hressing
á heitum sumardegi. Bruggaður í anda belgískra
hvítbjóra. Sæmilegasti sopi.
Lesa nánar!. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Pólverji á klakann?
- bjórbókin 29.5.2006 |
|
Lítill fugl gaukaði því að mér um daginn að hinn pólski bjór
Kozlak Amber væri líklega á
leið til landsins nú í sumar ásamt Amber classik sem ég hef að
vísu ekki smakkað sjálfur. Kozlak er hinn ágætasti
bock sem óhætt er að prófa. Það er alltaf
gaman þegar eitthvað nýtt bætist við í hillur ÁTVR, til lukku með það
íslendingar. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Enn einn frá Nørrebro
- bjórbókin
27.5.2006 |
|
Ravnsburg Rød
er án efa sá bjór sem ég mæli með í sumar úr danskri bjórflóru.
Bjór þessi sem er Írskt Rauðöl er sérstaklega ljúffengur og þægilegur
bjór sem hentar afar vel sem "session" bjór. Það er Nørrebro
Bryghus sem á heiðurinn af þessum frábæra bjór sem kom mér
gjörsamlega í opna skjöldu þegar ég bragðaði á honum.
Lesa nánar! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Besti bjór Danmerkur? -
bjórbókin 20.5.2006 |
|
Það er spurning? Ef
Bombay Pale Ale frá
Nørrebro Bryghus er
ekki besti bjór Danmerkur þá er hann amk ansi nálægt því.
Hér er um sérstakelga ljúffengan drykk að ræða úr Indian Pale Ale
fjölskyldunni. Brakandi og hressandi bjór með mikinn karakter.
Lesa nánar! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Kaffi og bjór..afhverju
ekki? - bjórb. 14.5.2006 |
|
Já það er nefnilega vel hægt að brugga bjór og nota kaffi til
bragðbætingar. Oft minnir ristað maltið á ristaðar kaffibaunir og
þá sér í lagi hið dökka ristaða malt sem notað er í porter og stát.
Þessi fíni bjór er bruggaður með kaffibaunum frá Súmötru og er bara hin
ágætasta hressing þó svo að kaffibragð mætti vera meira.
Lesa nánar! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Sælgæti í flösku -
bjórbókin 14.5.2006 |
|
Það er kominn tími á einhverja hreyfingu hér. Bjórbókinn smakkaði
á dögunum frábært flæmskt rauðöl sem heitir
Duchesse De Bourgogne.
Bjór þessi sem þroskast í 18 mánuði í eikartunnum er ferskur og léttur
og afar bragðgóður. Bjórbókin mælir sterklega með þessum
Lesa nánar! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórsmakk í Norðri -
bjórsullur desember 2005 |
|
Norður undir íshafi langt, langt norður af þeim stað er sunnlendingar
álíta vera heimsendi voru samankomnir nokkrir spennuþrungnir bragðlaukar
með eftirvæntingarseyðing í hjarta. Bjórsmakkarar voru
þrír að þessu sinni. Einn að eigin mati nokkuð vanur. Einn mjög
áhugasamur og einn alveg gjörsamlega rennandi blautur á bakvið eyrun.
Lesa nánar!. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Enginn jólabjór á klakanum - bjorbókin
04.01.2006 |
|
Mikið er maður orðinn þreyttur á að koma
heim til heimalandsins og í þá bjórómenningu sem þar ríkir. Í ár
var það sem fyrr skammarlegt hve úrval jólabjórs var lélegt í hillum
einokunarvaldsins ÁTVR. Viking var með einn jólalager,
Egils með tvo og svo var hægt að fá hinn danska
Tuborg, rónabjórinn í Danmörku Harboe sem seldur var
sem eðalbjór í Ríkinu og loks
Royal X-mas sem reyndar er ansi góður bjór. Eitthvað
var pantað inn af vetrarbjór (wintage) þetta árið sem ekki er eiginlegur
jólabjór heldur bjór sem er bruggaður fyrir háveturinn og er oft af
gerðinni öl. Þetta þótti mönnum aldeilis jákvæð þróðun og þegar
fréttist af hinum rómaða Samuel Adams Winter lager komust margir
í jólastemninguna. Bjórbókin sem knúin var til að koma heim á
klakann þetta árið var ein þeirra. Með tilhlökkunarglampa í augum
og spennta bragðlauka rölti ég inn í ÁTVR mitt í jólastressinu í þeim
hugleiðingum að kaupa mér nokkra Samuel Adams Winter Lager til að
róa taugar og stabilísera mallakútinn en viti menn hillurnar voru
galtómar. Það var sko löngu búið að selja síðasta Winter Lagerinn
í gervöllu ríkinu. Þetta voru jú mikil vonbrigði og ég fann tárin
streyma niður vangana. Í örvæntingu minni ákvað ég að reyna að
gera gott úr því sem komið var og kaupa mér einhvern annan jólabjór svo
sem Royal X-mas en hann var líka búin og sömu sögu var að segja
um alla aðra jólabjóra!!! Hvað var að gerast? 2 dögum fyrir
jól var ekki hægt að fá einn af hornsteinum sannrar jólastemningar,
sjálfan jólabjórinn? Að vísu voru þarna stöku dósir af Harboe
Julebryg sem er einn af rónabjórum Danmerkur og þá hollara að drekka
skólp...ég lét hann alveg vera. Já þetta var mikið áfall fyrir
lítinn bjórkarl. Það má kannski líkja þessu við að fá ekki skötuna
á Þorláki eða Rjúpur á aðfagnadegi fyrir þá sem slíkan mat borða.
Ég fór bugaður út úr ÁTVR þennan dag með lítið annað en nokkrar
piparkökur í vasanum og útbrunnið VISA kort í veskinu.
Hver var ástæðan? Jú líklegast er að menn sem sjá um þessa hlið
málsins, þ.e.a.s. innflytjendur og bruggarar hafi verið svona skelfingu
lostnir yfir að selja ekki allan þann bjór sem þeir settu í ríkið.
Hræðileg tilhugsun ekki satt og því var betra að bara framleiða eða
flytja inn örlítið brot af þessum bjórum.
Já ekki er allt ruglið eins, auðvitað skemmist bjórinn ekki þó svo að
menn klári hann ekki fyrir jól. Menn drekka nefnilega líka bjór
milli jóla og áramóta og jafnvel um og eftir áramótin. Já þetta var bara
enn ein staðfestingin á hvílík eindæma bjórómenning ríkir í landinu. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr Jólabjór í bókina - bjorbókin
03.12.2005 |
|
Segja má að Young's
Christmas Ale sé einn af þremur
jólabjórum frá Young. Þetta er fallegur bjór í glasi með ágætis
froðu. Í munni er hann þægilegur og liggur vel með fína fyllingu.
Bragðgóður er hann með eindæmum með miklum spriklandi humlum og
þægilegan biturleika.
Lesa nánar! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Jingle Ale jólabjór - bjorbókin
02.12.2005 |
|
GB Jingle Ale er danskt
jólaöl frá litlu Brugghúsi í Hróarskeldu. Nafnið lofar góðu og
innihaldslýsingin er afar kræsileg, hunang, múskat og kanil! Hins
vegar er ekkert sem minnir á jól né innihaldslýsingu og í heild sinni er
bara um frekar lakan bjór að ræða. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Trappist er endurfæddur - bjorbókin
15.10.2005 |
|
Magnað, nú hafa samtökin "Internationale Vereniging Trappist" ákveðið að
leyfa aftur La Trappe bjórnum frá
De
Koningshoeven að bera merki hinna ósviknu munkabjóra eða
Trappist. Klaustur þetta í Hollandi
bruggar bjór sem ber nafn klaustursins La Trappe en það er þaðan sem
nafn Trappist munkareglunnar er komið. La Trappe bjórinn var áður
einn af hinum ósviknu munkabjórum en svo í kringum 1999 tók hið
hollenska brugghús Bavaria yfir brugguninni og flutti hluta
bruggfelisins í sín eigin húsakynni. Bjórinn stóðst því ekki
lengur þær kröfur sem þurfti til að mega bera Trappist merkið. Nú eru
hins vegar aðstæður aftur orðnar þannig að bruggunin fer öll fram í
klaustrinu og því hefur La Trappe aftur hlotnast hinn virðulegi Trappist
staðal. |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórveisla í Óðinsvéum - bjorbókin 2.10.2005 |
Hin árlega bjórhátíð í Danmörku fer fram í Óðinsvéum að þessu sinni
(28.10 - 30.10). Um er að ræða stærstu
bjórhátíð
Danmerkur þar sem menn geta smakkað allan heimsins bjór. Ekki
minni maður en sjálfur mógúllinn
Michael Jackson
hefur nokkrum sinnum heiðrað samkomuna með nærveru sinni.
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Gómsætur Hellabjór - bjorbókin 2.10.2005 |
Grottenbier sem þýðir
beinlínis hellabjór er sköpunarverk hins þrjóska bruggara Pierre Celis
sem er faðir hins belgíska hvítbjórs. Bjór þessi er látinn
þroskast í djúpum hellum við 12º og 95%
raka. Allt hefur þetta sérstök áhrif á gerið og afraksturinn er
mildur og þægilegur bjór við allra hæfi.
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Hátækni bjórdrykkja - mbl.is 30.09.2005 |
Margir ölvinir eiga að sögn danska dagblaðsins Jyllandsposten
við þann vanda að stríða að þegar setan á kránni er orðin löng er oft
erfitt, vegna verkfalla í raddböndum og fleiri líffærum, að panta meira
þegar kollan er tóm. En þýskir uppfinningamenn hafa fundið lausn.
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Fínn fordrykkur - bjórbókin
28.09.2005 |
Þeir henta oft vel sem fordrykkir þessir ávaxtabjórar. Hér er einn
frá Englandi sem bruggaður er að hætti Belga. Þetta er reyndar
heldur sætur bjór en þó kemur þurr súr
lambic keimur í gegn og dregur úr væmninni.
Ágætur fordrykkur en ekkert meir en það.
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Oktoberfest í fullu blússi- bjórbókin
23.09.2005 |
Hin árlega
Oktoberfest í Munchen er líklega stærsta hátíð á jörðinni en þangað
leggja um 6-7 milljónir manna frá öllum heimsins hornum leið sína ár
hvert. Hátíðin stendur yfir í um 3 vikur en á þeim tíma eru drukknir
yfir 6 milljónir L af bjór, étnir um 500.000 kjúklingabitar og um
400.000 svínapylsur. Að hátíð lokinni liggur svo eftir um 680 tonn af
rusli sem Munchen búar þurfa að koma fyrir kattarnef.
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Magnaður karl - bjórbókin 19.09.2005 |
Gales Trafalgar 200 er einn af
þessum dularfullu spennandi bjórum. Þetta er bjór sem ætlaður er
til geymslu og þá á hlið. Bjórinn er afar sérkennilegur og
bragðmikill og tilheyrir stílnum Old Ale. Reyndar eru til nokkrir
Old Ale stílar þannig að erfitt er að átta sig á þessum stíl.
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Samuel Adams Boston Lager - 16.09.2005 |
Hér á umræðunni hef ég orðið var við afar jákvæða umfjöllun um
Samuel Adams Boston
Lager. Ég hef smakkað kauða áður og líkaði þá ekki vel.
Ég ákvað hins vegar að slá til aftur sökum þess hve menn virðast ekki
halda vatni fyrir þessum bjór. Já útkoman var bara ágæt.
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Nýr bjór í bókina - 11.09.2005 |
Hér er einn sem kemur beint úr smiðju Moortgat sem er sama brugghús og
færir okkur Duvelinn. Í raun minnir þessi bjór um margt á konunginn Duvel
hvað lykt og áferð varðar. Bragðmikill með dálítinn ávaxtakeim eða
frútt. Fín fylling og þægilegt eftirbragð. Hinn fínasti sterköl!
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Nýr bjór í bókina - 07.09.2005 |
Ég ákvað að smakka einn af hinum margrómuðu bandarísku bjórum frá einu
af fjölmörgu mikrobrugghúsum þar í landi. Bjórinn,
Sierra Nevada Bigfoot Ale
er hins vegar hreint eitur í mínum munni og mæli ég mönnum frá því að
smakka kauða.
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Nýr bjór í bókina - 29.08.2005 |
Nýr þýskur pilsner í bókina.
Göttinger eðal pils frá
smábænum Göttingen í hjarta Þýskalandi er einn af þessum klassísku
pilsnerum. Rífur ögn í með brakandi ferskum humlum og þægilegan
biturleika.
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Nýr bjór í bókina - 20.08.2005 |
Ég hef lengi ætlað mér að endurmeta þetta rómaða belgíska sterköl.
Gulden Draak var einn af þeim bjórum sem ég tók með heim frá
Brussel forðum en kauði brotnaði á leiðinni og hvarf ofan í
gallabuxurnar mínar. Nú er komið að endurfundum!
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Open Source Bjór - bjórbókin ágúst 2005 |
Nú hafa nokkrir sniðugir Danir bruggað bjór sem þeir kalla Vores
Øl 1.0 eða bjórinn okkar útgáfa 1.0. Vores
Øl er eins og þeir segja Open Source bjór, hugtak sem betur er
þekkt í heimi tölvunördanna, og er þetta fyrsti open source bjór
veraldar. Hugmyndin með bruggun bjórsins er að gefa upp nákvæma uppskrift bruggsins
öllum til afnots. Mönnum er því heimilt að nota
uppskriftina til að brugga bjórinn eða betrumbæta hann.
Einu skilyrðin eru að gefa alltaf upp nákvæma uppskrift. Danirnir
vonast með þessu til að bjór þessi eigi eftir að þróast með tímanum og jafnvel
enda sem einhver eðal bjór.
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Westvleteren uppurinn - cnn.com 08.11.2005 |
|
Sökum gríðarlegrar eftirspurnar, eftir að hinn belgíski
Westvleteren bjór var
kosinn besti bjór veraldar, hafa munkarnir í Westvleteren nú lokað fyrir
sölu bjórsins þar sem hann er búinn. Það er því ekkert að fá fyrr
en á næsta ári þegar karlarnir opna aftur fyrir söluna.
Lesa nánar |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Á GOSE slóðum - bjórbókin
25.07.2005 |
|
Gose er einn af hinum
sjaldgæfari bjórstílum þessa heims og jafnframt mjög forvitilegur.
Í dag hefur gose stíllinn verið endurlífgaður og fæst nú á aðeins tveim
stöðum í Þýskalandi. Bjórbókin skellti sér í víking til að kanna
málið. Lesa meira! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Fyrsti Pólverjinn - bjórbókin
16.07.2005 |
|
Kozlak Amber er sá fyrsti
sem ég smakka frá Póllandi. Þetta er fallegur bjór í glasi sínu
(sem er fallegt og minnir á stórt koníaksglas) með sæmilega froðu sem
staldrar heldur stutt við. Frekar léttur karl með þetta einkennandi
Bock bragð sem mér finnst afar erfitt að lýsa.
Lesa meira! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Magnaður frúttari - bjórbókin
8.07.2005 |
|
Þessi nýji bjór í bókina er sko aldeilis skemmtilegur. Bjórinn sem
ber það skondna nafn
Banana Bread Beer er bragðgott öl með áberandi bananakeim.
Ægilega góður salgætisbjór sem vert er að prófa. Fæst í Superbest í
Árósum fyrir DK búa. Lesa meira! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr snillingur í bókina - bjórbókin
26.06.2005 |
|
Hér
er enn einn brjálaði bjórinn ("wicked brew") á ferð og er hann
í sterkari kantinum að þessu sinni. Þetta gullna
belgíska sterköl, hefur oft verið á leið ofan í
innkaupakörfu mína en svo hefur ögrandi alkóhólmagnið alltaf fælt mig
frá. Magnaður bjór í anda Duvels.
Lesa meira! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Meðlimakortin tilbúin - bjórbókin
22.06.2005 |
|
Nú hafa hin nýju meðlimakort Bjórbókarklúbbsins verið sett í póst
og meðlimir geta því búist við þeim inn um lúguna á næstu dögum.
Kortin veita afslátt á völdum krám bæjarins sem og tölvuþjónustu frá
Og svo. Ert þú
bjóráhugamaður/kona sem ekki ert búin að skrá þig?
Skráning í bjórklúbbinn |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr í bókina! - bjórbókin
12.06.2005 |
|
Piraat Ale er belgískur
bjór af gerðinni
Belgískt sterköl og minnir því um margt á Duvelinn
góða. Þetta er bragðmikið og vermandi öl sem óhætt er að mæla með.
Lesa nánar! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Ótrúlegur bjór - bjórbókin
10.06.2005 |
|
Með þessu merkilega öli, er
Thomas Hardy's Ale nefnist, smakkar bjórbókin sinn fyrsta bjór
af
Barley Wine stíl. Þetta er afar undarlegur bjór með mikinn
karakter og rosalegt geymsluþol. Ef menn vilja prófa Barley Wine
þá er óhætt að mæla með þessum.
Lesa nánar! |
|
|
------------------ |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Kósíbjórinn sem brást - bjórbókin
2.06.2005 |
|
Ég smakkaði þennan, nokkuð umtalaða bjór, um daginn er
Delirium Nochturnum
nefnist og ég er hræddur um að ég verði að segja að ég var ekki sáttur
við kauða. Lesa nánar!
Annað var uppá teningnum með hinn kanadíska
Maudite sem er hreint
meistaraverk sem leikur við bragðlauka og sál.
Lesa nánar! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Duvel koinn í Ríkið! - bjórbókin
30.05.2005 |
|
Þá er
Duvel loksins kominn aftur í hillurnar. Það þarf svo sem
ekki að fjölyrða meira um það, þetta eru bara frábærar fréttir.
Njótið vel eins besta bjórs sem Belgar bjóða uppá! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Leffe af krana á Íslandi! - bjórbókin
23.05.2005 |
|
Samkvæmt heimildum er hinn gómsæti klausturbjór
Leffe Blond farinn af
drjúpa af krönum Cafe Kultura. Nú er um að gera að drífa
sig á staðinn og prófa þennan bjór eins og hann gerist bestur. Það
er reyndar eitthvað vesen með glösin sem við vonum að leysist hið
snarasta. Lesa meira |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr bjór á Brennslunni! - bjórbókin 19.05.2005 |
|
Nú geta Íslendingar glatt sig yfir því að geta nú á
Kaffibrennslunni
notið einnar af perlum hins belgíska bjórheims
Belle Vue Kriek.
Þessi mildi og létti bjór er belgískt ávaxtaöl eins og það gerist best.
Bjórinn er sætur en þó súr og ber keim af kirsuberjum og snefil af
möndlum.
Lesa meira |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr bjórklúbbur! - bjórbókin 18.05.2005 |
|
Nú hefur Bjórbókin sett á stofn nýjan bjórklúbb sem vonandi mun verða
stór í framtíðinni. Skráðu þig í klúbbinn og legðu þannig þitt af
mörkum í baráttunni um að gera Ísland að betra bjórlandi. Auk þess fá
meðlimir viðeigandi fréttir sem og vonandi ýmis fríðindi í framtíðinni. |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr bjór í bókina! - bjórbókin 12.05.2005 |
|
Bjórbókin bætir enn á ný í sarpinn og að þessu sinni er það náfrændi
meistara
Duvels. Maredsous 10
er nefnilega belgískur Tripel sem bruggaður er í Moortgat brugghúsinu
þar sem Duvelinn er upp alinn. Massífur bjór hér á ferð.
Lesa nánar! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Duvelinn! - bjórbókin 12.05.2005 |
|
Eins og vonandi flestir vita þá kom
Duvelinn í gær í kæliskápa
Kaffibrennslunnar.
Nokkrar harðar bjórbumbur mættu og smökkuðu á þessum undra mjöð og voru
menn almennt sáttir. Hér má lesa nánar um þessa hamingjustund.
Lesa meira! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Duvelinn er kominn! - bjórbókin 11.05.2005 |
|
Nú geta menn tekið forskot á sæluna og skellt sér á
Kaffibrennsluna og
notið
Duvels í sínu rétta glasi þar til hann svo kemur í hillur ÁTVR í
byrjun júní. Hér erum við að tala um einn
besti bjór veraldar og menn ættu
því ekki að verða sviknir. |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Sigurbjór í tilefni lok styrjaldar -
BBC.com 05.05.2005 |
|
Í tilefni þess að nú eru 60 ár liðin síðan heimstyrjöldinni síðari lauk
þá hefur JW Lee brugghúsið í Manchester ákveðið að brugga hinn svo
kallaðan VE DAY bjór á nýjan leik. Bjór þessi sem bruggaður var
til að fagna stríðslokum á sínum tíma hefur ekki verið bruggaður síðan.
Lesa meira |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr bjór í bókina! - bjórbókin 07.05.2005 |
|
Ég lét loksins verða að því að prófa þennan frekar fráhrindandi bjór.
Bjór sjóræningjanna hljómar amk í mínum eyrum eins og um einhvern rudda
sé að ræða. Hins vegar kom þetta frábæra öl skemmtilega á óvart og
ég get óhikað mælt með kauða. Svakalegur bjór fyrir svakalegt
fólk! Lesa meira |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjór fyrir heilann? - BBC NEWS 29.04.2005 |
|
Stöðugt heyrir maður fréttir um hve neysla alkóhóls í hóflegu magni er
líkamanum holt. Nú hafa Sænskir vísindamenn komist að þeirri
vafasömu niðurstöðu að alkóhól stuðli að nýmyndun heilafruma sem eru
auðvitað frábærar fréttir fyrir okkur bjórunnendur eða hvað?
Rannsóknin sýnir enn fremur að áfengi geti orðið vanabindandi...hverjum
gat dottið það í hug?
Lesa meira |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Smakkkvöldið vel lukkað að vanda -
bjórbókin 02.05.2005 |
|
Eins og kunnugt er fór hið 3. smakkvöld bjórklúbbsins Kidda fram
laugardaginn 30.apríl síðastliðinn. Bjórinn var góður og menn voru
afar hamingjusamir og sumir uppgötvuðu sinn uppáhaldsbjór þetta kvöld.
Af mörgum góðum var þó einn sem stóð uppúr með 3,5 atkvæði af 6
mögulegum. Sá var jólagæðingurinn Young's Christmas Pudding Ale.
La Chouffe kom þó fast á hæla Young's með 2,5 atkvæði.
Lesa meira! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Smakkkvöld hjá bjórklúbbnum Kidda í DK -
bjórbókin 29.04.2005 |
|
Annað kvöld 30. apríl verður haldið þriðja smakkkvöld bjórklúbbsins
Kidda í Danmörku. Sem fyrr verða 4 gæðingar bragðaðir og eru þeir
ekki af verri endanum í þetta skiptið. Við byrjum á Schneider
Weisse Kristal sem er magnaður hveitibjór frá Þýskalandi með ferskum
sætum blæ, svo er það jólabjórinn
Young's Christmas
Pudding Ale (já tökum jólin snemma í ár) en bjórbókin var svo
heppin að komast yfir gamlar byrgðir af þessum gríðarlega vinsæla
jólabjór, næst er það Hinn
forboðni ávöxtur frá Hoegaarden sem er belgískt sterköl í háum
gæðaflokki og loks endum við á þeim besta sem bjórveröldin býður uppá í
dag eða La Chouffe.
Menn munu smakka og dæma og svo verður krýndur sigurvegari kvöldsins sem
birtur verður hér í næstu viku. |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
7 dagar í Duvel -
bjórbókin 25.04.2005 |
|
Ef heimildir bjórbókarinnar eru réttar þá kemur Duvelinn, konungur
bjórsins í hillur ÁTVR núna um mánaðarmótin. Ég hvet menn og konur
eindregið til að kaupa þennan ljúfling og njóta vel. Til hamingju
með Duvelinn Íslendingar! Lesa meira! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Nýr í bókina, Egils Maltbjór -
bjórbókin 21.04.2005 |
|
Egils Maltbjór er bjór við allra hæfi. Sætur, mildur og hressandi
eða eins og einhver sagði, hressir bætir og kætir. Hinn
ágætasti bjór frá Agli. Þessi var í boði Jóa og Guðrúnar TAKK!
Lesa meira! |
|
|
 |
|
Hvaða bjór ert þú? -
bjórbókin 20.04.2005 |
|
Einhverjir hafa reyndar tekið þetta próf hér áður en sökum þrýstings þá
hef ég ákveðið að setja þetta próf hér inn aftur. Prófið þetta og
sjáið hvort það passi ekki við ykkur eða sendið linkinn á vini og
vandamenn. Taka prófið! |
|
|
 |
|
Hugguleg stund á Vínbarnum og
Kaffibrennslunni -
bjórbókin 19.04.2005 |
|
Síðastliðinn fimmtudag var haldin bjórsmökkun á Vínbarnum eins og mönnum
er nú kunnugt. Kvöldið gekk vel fyrir sig og menn mjög ánægðir með
veigarnar. Smökkunin hófst á Vínbarnum og færðist svo í lokin yfir
á Kaffibrennsluna. Spurning að gera þetta að reglulegum viðburði?
Lesa meira |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórstund á Vínbarnum -
bjórbókin 13.04.2005 |
|
Á morgun fimmtudaginn 14. apríl verður haldin bjórstund á Vínbarnum þar
sem áhugasamir geta notið munkabjórs á borð við Orval,
Westmalle sem og
klausturölsins Leffe. Stefnan er að sem flestir bjórgæðingar mæti
og hittist en auðvitað eru forvitnir lager karlar líka velkomnir.
Herlegheitin hefjast kl 19:30. Látið nú sjá ykkur. |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Eitthvað fyrir aurapúkana í ÁTVR -
bjórbókin 5.04.2005 |
|
Ég rakst á þessa frétt í
Fréttablaðinu 31. mars. Þar segir frá Dortmunder Hansa Export sem á
að vera ódýrasti 5% bjórinn í Ríkinu. Hansa á að vera afar mildur og
léttur þýskur lager af Dortmunder stíl. Sjálfur hef ég ekki smakkað
kauða en það hafa hins vegar tvær af bjórbumbum landsins gert, þeir
Eiríkur og Haukur. Gott að vita af þessum þegar buddan er lasin.
Þetta var það sem Haukur og Eiríkur höfðu að segja á Ratebeer.com.
"canned, very flat, watery, hints of corn and dirty
laundry, maybe grandma´s pants ...." Haukur!
"Golden colour, small head, gone in 6 seconds, not bad,
still missing something a fair bit ." Eiríkur!
Fréttablaðið 31. mars
Hansa Export bjórinn þýski er ódýrasti 5% bjórinn
sem fáanlegur er hérlendis, kostar 167 kr. í 500 ml
dósum og fæst í Vínbúðunum í Kringlunni og
Heiðrúnu. Hann er hefðbundinn gæðabjór, léttur
Dortmunder-bjór sem er framleiddur af DAB í Dortmund
í Þýskalandi. Dortmunder-bjór er ljósgullinn
lagerbjór sem hefur meira fyllingu og er nokkuð
dekkri en Pilsener-bjórar, notar minna af humlum og
er þar af leiðandi mildari og minna bitur. Hansa
Dortmunder hefur frekar léttan ávaxtakeim og
freyðir í hófi. Þar sem Hansa er lagerbjór er hann
framleiddur við lágt hitastig og gerjun á sér stað á
lengri tíma í botni tankanna en ekki á yfirborði, og
fer eftir hinum frægu lögum frá 1516, Reinheitsgebot. |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Páska St. Feuillien einfaldlega vondur
-
bjórbókin 24.03.2005 |
|
Það óhugsanlega virðist hafa átt sér stað í heimi bjórsins þetta árið.
Páskabjór St. Feuillien er nánast ódrekkandi á flöskunni. Já ég
segi þetta með tárin í augunum og sé fram á ónýta páska en þetta er bara
staðreynd. Ég vara því við kaupum á þessum bjór í flösku.
Kranaútgáfan er hins vegar allt önnur Ella.
Sjá nánar! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Hvað segir bjórinn um persónu okkar?
- bbc.co.uk 18.03.2005 |
|
Nú hefur gríðarlega mikilvæg
rannsókn litið dagsins ljós í London sem tengir saman persónuleika, val á
drykk og bílaáhuga. Já hljómar undarlega en vísinda menn og
Sálfræðingar segjast nú geta lýst persónunni með því að skoða áfengisval
fólks á kránni. Menn voru spurðir hvaða bíl þeir myndu velja sér og út frá
því gátu Sálfræðingar svo persónugreint viðkomandi. T.d. völdu 63%
þeirra sem voru með bjór í glasi sínu Vintage MG (sem er víst bíll)
sem þýðir auðvitað að þeir eru nýjungagjarnir og mjög skapandi í hegðun og
hugsun. Hins vegar verður þessu fólki lítið úr verki af þessum
pælingum sínum og nýjar hugmyndir ryðja þeim gömlu úr vegi.
"Bjórfólkið" er líklegt til að kunna að meta Jazz og óhefðbunda list
og það er lítið að spá í tísku og klæðist oftast svörtu. Já þetta er
magnað! Sjá
frétt á bbc! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
DUVEL aftur á Íslandi 1. mai -
bjórbókin 23.03.2005 |
|
Bjórunnendur um heim allan
supu hreinlega hveljur rétt fyrir jól er fréttist að
Duvel, sjálfur konungur bjóranna, væri farinn úr sölu á Íslandi.
Ástæðan voru breytt lög einokunarfyrirtækisins ÁTVR sem gerði það að
verkum að Duvel og fleiri góðir kallar áttu engan möguleika í hillum
vínbúðanna. Nú er samt von á Duvel aftur þann 1. mai og þá er eins
gott að kaupa vel af honum til að fá hann inn í kjarnasölu á nýjan leik.
Sjá nánar! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórklúbburinn Humlarnir -
bjórbókin 14.03.2005 |
|
Bjórbókin fundar með Magnúsi formanni Humlanna
sem er nýr bjórklúbbur á Íslandi. Fundurinn fór fram í höfuðstöðvum
Bjórbókarinnar í Danmörku og fór hann með öllu vel fram. Helstu mál
á dagskránni voru vangaveltur um Duvel á Íslandi, endurkomu Hoegaarden sem
og ágæti Leffe. Einnig voru nýjir bjórar smakkaðir og spáð í spilin
varðandi tollareglur á bjór og lítilega rætt um
bjórklúbbinn Kidda sem nýlega var
settur á stofn hér í Danmörku.. Magnús smakkaði svo nokkra nýja bjóra
svo sem La Chouffe,
Karmeliet Tripel og var kallinn aldeilis sáttur.
Bjórbókin bíður nú spennt eftir opnun heimasíðu Humlanna sem Magnús
formaður lofar innan tíðar. |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórklúbburinn Kiddi á RisRas 19.02.2005 -
bjórbókin 1.03.2005 |
|
Laugardaginn 19. febrúar fór hinn nýskapaði bjórklúbbur Kiddi aftur á
stjá. Ferðinni var heitið á Ris Ras þar sem belgíska ölið flæðir
yfir þröskulda. Það var kominn tími fyrir þessa kalla að prófa
alvöru Belga af krana. Auk bjórdrykkju var efnt til fótboltamóts á
fótboltaborði staðarins. Kvöldið heppnaðist með eindæmum vel
og hér má sjá hvað einn úr hópnum hafði að segja um atburðinn
Sjá nánar! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
"Bjórlíki" aftur vinsælt? -
BBC.COM 15.02.2005 |
|
Það er hættuleg þróunin sem á sér stað í Japan um þessar mundir. Þar
í landi eru menn nú að reyna bregðast við háum sköttum á bjór og sterka
drykki með því að skapa drykki sem minna á bjór en eru ekki bjór og fara
því betur með buddur viðskiptavinanna? Allir stærstu bruggarar
Japans eru því komnir í gang með framleiðslu á "bjór" úr hinum og þessum
afurðum svo sem sojabaunum og sjó.
Sjá nánar! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Fullt af nýjum "gömlum" bjór m.a.
Westvleteren -
bjórbókin 26.01.2005 |
|
Það er fyrir löngu kominn tími á að reyna að koma öllum þeim bjórdómum sem
ég á á litlum snepplum hér og þar inn á vefsinn. Ég tók mig til og
setti inn nokkra kalla í dag og má þar nefna
Westvleteren,
La Trappe,
Erdinger Oktoberfest,
Liefmans Goudenband,
ofl. Vonandi kemst ég í það að setja fleiri inn sem fyrst því það er
enn hellingur eftir. |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórsmökkun í Danmörku -
bjórbókin 15.01.2005 |
|
Bjórbókin í samvinnu með Stavnsvej strákunum S/F mun standa fyrir
bjórsmökkun næstkomandi laugardag eða 15/1 2005. Það er reyndar í
kvöld. Kvöldið hefst með stuttri kynningu um bjór ásamt því sem
nokkrir af bestu bjórum veraldar verða smakkaðir. Þema kvöldsins er
fjölbreytileiki og munum við því smakka bjór alveg frá
Kriek kirsuberjabjór og uppí
Westmalle, alvöru munkabjór. Það er von bókarinnar að einhver
innan raða Stavnsvej strákanna komist á bragðið og uppgötvi að það er bjór
handan
Tuborgs. |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Tveir nýjir í bókina -
bjórbókin 15.01.2005 |
|
Tveir nýjir kallar voru skráðir inn í dag. Þetta eru jólabjórar enda
eru enn jól í janúar eða hvað? Annar þeirra
Grolsch Herfst Bok kom
verulega á óvart en hinn,
Neuschwansteiner Weihnachts-bier var bara sæmilegasti bjór. |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Gamla bjórbókin en í gangi -
bjórbókin 6.01.2005 |
|
Bjórbókin vill bara minna á að þetta er nýja útlitið á síðunni sem enn er
í vinnslu. Gamla útlitið eða gamla síðan er enn virk og má nálgast
hana undir hlekknum "gamla
bjórbókin" hér að ofan. Yfirhalningin tekur tíma sökum anna en
hún gengur samt hægt og bítandi. |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Drykkjuköst skapa bjórbumbu! -
BBC.COM 28.11.2004 |
|
Vísindamenn í Danmörku benda á að mönnum sé hættara við að fá bjórbumbu
(verða perulaga) við að drekka mikinn bjór á stuttum tíma, eins og við
gerum á Íslandi, í stað þess að drekka sama magn yfir lengri tíma.
Sem sagt, drekki maður lítið en stöðugt að þá er allt í lagi og maður ver
sig að auki fyrir ýmsum æðasjúkdómum.
Lesa meira |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Drykkjuköst skapa bjórbumbu! -
BBC.COM 28.11.2004 |
|
Vísindamenn í Danmörku benda á að mönnum sé hættara við að fá bjórbumbu
(verða perulaga) við að drekka mikinn bjór á stuttum tíma, eins og við
gerum á Íslandi, í stað þess að drekka sama magn yfir lengri tíma.
Sem sagt, drekki maður lítið en stöðugt að þá er allt í lagi og maður ver
sig að auki fyrir ýmsum æðasjúkdómum.
Lesa meira |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórævintýrið búið, Ísland er sokkið! -bjórbókin
5.12.2004 |
|
Við erum ung
bjórdrykkjuþjóð og höfum því afsökun fyrir lélegt bjórúrval en það sem nú
er að gerast í íslensku þjóðfélagi nær ekki nokkurri átt. Þróunin hefur
verið í rétta átt framan af og við höfum orðið vitni að komu hágæða bjórs
m.a frá Belgíu eins og t.d.
Duvel,
Chimay,
Leffe, og nú síðast
Orval,
Westmalle ofl. Framtíðin virtist björt því allt eru þetta bjórtegundir
eins og þær gerast bestar í heiminum í dag. Hins vegar var Adam ekki
lengi í paradís, og í dag hefur markaðurinn og í raun bjórmenning okkar
íslendinga orðið fyrir miklu áfalli. Fréttir um að Chimay,
Hoegaarden,
Orval, Westmalle, og sjálfur konungurinn Duvel séu dottnir út af markaði
koma eins og blaut tuska framan í andlit okkar sem eitthvað höfum vit á
góðum bjór. Þetta eru ótrúlegar fréttir og maður skilur ekki hvað er að
gerast.
Eru Íslendingar
einfaldlega bara svona þröngsýnir og íhaldssamir að þeir vilja bara sama
gamla lagerinn sem þeir hafa ætíð notað til að drekka frá sér allt vit um
helgar, erum við kannski bara svona illa upplýst um heim bjórsins og
fáanlegar vörur í ÁTVR eða er bjór einfaldlega bara allt of dýr? Menn
snobba mikið fyrir rauðvíni, koníaki og öðru víni þannig að við virðumst
hafa þetta í okkur. Við erum ekki lengur bara einhverjir ófágaðir
sveitalubbar sem borðum úldinn þorramat með brennivíni í torfkofunum
okkar.
Ég held að vandinn liggi í
áfengislögunum og ÁTVR ,en eins og staðan er í dag er það aðeins ÁTVR sem
hefur einkaleyfi á smásölu áfengis sem aftur þýðir að þeir stjórna því
hvaða áfengi við Íslendingar getum notið sem og verðlagi. Í dag er nánast
ómögulegt að koma með nýja vöru á markað því áður en hún kemst í fasta
sölu í ÁTVR þarf að seljast ákveðið magn af henni í reynslusölu. Til að
vara seljist þarf neytandinn svo að vita um tilvist hennar og til þess að
gera það þarf að auglýsa vöruna sem er hins vegar ólöglegt á Íslandi. Enn
fremur er álagning á bjór ótrúlegt og nánast bara farið eftir magni
vínanda. Við státum að dýrasta áfengi veraldar og má þakka það einokun
ríkisins á markaðinum. Ný vara eins og hágæða bjór kemur því í
reynslusölu án þess að nokkur viti af henni og þeir fáu sem uppgötva hana
þurfa að punga út formugum til þess að njóta hennar.
Er ekki kominn tími til að
gera eitthvað í þessum málum? Gefum léttvín frjálst og aukum samkeppni og
lækkum verð. Það er kominn tími á að rúlla þróuninni af stað og ná
bjórmenningunni upp á svipuð plön og víðast hvar í heiminum í kringum
okkur. Það er lágmarks mannréttindi að fá að njóta bjórs sem er einn
elsti og merkasti drykkur mannkyns.
|
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Gleðilegan bjór, hvaða jólabjór er
bestur?-bjórbókin
28.11.2004 |
|
Nú styttist í jólin víðast hvar á jarðkringlunni með öllu tilheyrandi.
Það þýðir að öll helstu brugghús veraldar keppast við að koma jólabjórnum
sínum til byggða. Hillur verslananna fyllast því af þessum
hátíðarveigum og auðvelt er að tapa áttum. Hverja á maður að kaupa
af þessum jólaköllum, hvaða bjór er bestur og hver er verstur? Til
að auðvelda mönnum valið eitthvað þá hef ég tekið saman umfjöllun um
nokkra af þessum bjórum sem koma á markað í danmörku (amk í Árósum) og
menn geta notað það svona til viðmiðunnar við innkaup sín. Því miður
fæst lítið af þessum bjór heima á Íslandi en þar er samt hægt að kaupa einn eða tvo. Vona að þetta gagnist einhverjum...gleðilegan bjór!
Lesa meira! |
|
|
 |
|
Chouffe Nic'e, nýr í bjórbókinni - bjórbókin
27.11.2004 |
|
Chouffe Nic'e er belgískur
jólabjór fyrir þá sem vilja fá eitthvað fyrir sinn snúð. Í
flöskunni má finna 10% vínanda sem setur sinn svip á heildar bragð
bjórsins. Fyrir mitt leiti er vínandinn aðeins og áberandi í
þessum kalli en auk hans má finna öfluga humla sem gerir bjórinn bitran
og ferskan. Stór kall fyrir stóra kalla.
Lesa meira! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Bjórdómarnir aðgengilegri - bjórbókin
14.11.2004 |
| Nú hef ég sett saman
yfirlit yfir þá bjóra sem eru hér í bjórbókinni. Þetta er eins
konar efnisyfirlit og er að finna undir hlekknum "bjórdómar"
á hverri síðu og einnig undir hlekknum "yfirlit"!
Eins og það er í dag þá er þetta yfirlit bara til bráðabirgða því það er
hugmyndin að það verði hægt að sortera eftir mismunandi dálkum ofl. Í
þessu yfirliti koma fram nöfn á bjórunum, sem og hvenær fyrst smakkað og
hvar þeir eru smakkaðir. Einkunn kemur einnig fram og svo nokkur
tákn sem útskýrð eru nánar á síðunni. Það má taka það fram að í
yfirlitinu eru að finna þá bjóra sem eru komnir hingað inn á vefinn en
alls ekki alla þá bjóra sem ég hef smakkað. Það er vinna að koma þessu
öllu inn en ég vona að einhverntíman verði þetta allt komið! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
Cuvée De Noel eins og engill í glasi -
bjórbókin 8.11.2004 |
| Nú fer að líða að jólum enn
einu sinni sem þýðir að jólabjórar ef ýmsum toga fara að streyma til
byggða. Hér gætir ýmissa grasa allt frá léttum sætum lager yfir í
reykta þunga státa. Einn af þessum jólaköllum er
St. Feuillien Cuvée De Noel sem ástæða er að tala um sérstaklega
þar sem hér er á ferð belgískt öl af bestu gerð..
Lesa
meira! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
|
 |
|
J-dagurinn 1. jólaboðinn -
bjórbókin 2.11.2004 |
|
Nú nálgast fyrsti jólaboði Danmerkur eins og óð
fluga, nefnilega
J-dagurinn. Dagur sá sem verður haldinn hátíðlegur þann 5. nóv
næstkomandi er sá dagur þegar “snæbjórinn” frá Tuborg kemur til byggða.
Já Tuborg jólabjórinn kemur í fyrsta sinn í bæinn og á barina um
gervalla Danmörku á þessum degi og að því tilefni er bjórinn ókeypis.
Já þetta hljómar ótrúlega í eyrum hins sauðsvarta Íslendings en það er
satt. Hefð þessi hefur verið við haldið síðan sautjánhundruð og súrkál
og er nú einn af ársins stærstu viðburðum í Danmörku.
Viðburðurinn fer fram á þann hátt að bílalest frá
Tuborg ekur milli pöbba og afhendir bjórinn með tilheyrandi látum og svo
að ógleymdum Tuborg gellunum sem dreifa bjórnum. Bjórbókin ætlar að
mæta á RisRas og staðfesta sögusagnir. |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Nýr þýskur bjór í bókina -
bjórbókin 15.10.2004 |
| Bjórbókin er nú þessa
dagana á kafi í hinum þýska bjórheim sem er ekki síður spennandi en hinn
belgíski. Hér er einn ágætur hveitikall sem óhætt er að smakka Hvíti
hjörturinn eða Weisser Hirsch. Engin snilld en þó fínn!
Lesa meira! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Vel heppnuð ferð á Oktoberfest -
bjórbókin 9.10.2004 |
|
Bjórbókin skellti sér á Oktoberfest dagana
30.09.2004 - 03.10.2004. Ferðin heppnaðist vel í alla staði en sjálf
hátíðin í Munchen var þó nokkur vonbrigði.
Fyrir þá sem vilja bara hard core fyllerí þá er Oktoberfest í Munchen
málið. Þarna rölta fleiri hundruðir þúsunda manna um draugfullir í leit
að stað til að kaupa bjórinn sinn á sem er nánast ómuglegt. Eina
leiðin til að fá bjór er að hafa sæti í einhverju bjórtjaldinu og til að
hafa sæti þarf maður að vera með pantað eða mæta eldsnemma á svæðið.
Komist maður hins vegar inn í tjöldin og fær sæti þá eru menn í góðum
málum. Stemningin er gríðarleg í tjöldunum þar sem menn teyga hvern
líterinn á fætur öðrum og syngja saman þýska þjóðsöngva.
Sjá nánar pistil um ferðina hér! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Nýr bjór í bókina, Spaten Oktoberfestbier
- bjórbókin 26.9.2004 |
|
Í tilefni
Oktoberfestar
sem nú stendur yfir í landi gúrkanna þá ákvað bjórbókin að bragða á
einum af þeim Oktoberfestbjórum sem stendur okkur til boða. Bjór þessi
er frá Spaten sem er það brugghús sem kom með fyrsta lager heimsins um
miðja 19. öld og var sá svartur.
lesa meira! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Hið nýja útlir bjórbókarinnar! -
bjórbókin 24.9.2004 |
|
Það hefur kannski einhver tekið eftir
breytningum á útliti síðunnar. Um þessar mundir standa yfir miklar
breytingar á útliti og bakgrunni síðunnar bæði til að gera notendum
auðveldara um vik sem og að auðvelda mér að uppfæra síðuna. Enn sem
komið er eru aðeins örfáar síður vefsvæðisins komnar með nýja útlitið en
stefnt er að því að allt svæðið komist á rétt ról innan tíðar. þetta
þýðir að forsíðan er með þessu sniði en allir gömlu bjórdómarnir og
bjórlistinn er að finna í
GÖMLU BJÓRBÓK! Nýjir bjórdómar munu hins vegar koma inn með nýja
"lookinu". Bjórbókin vonar svo að nýja útlitið fari vel ofan í þá
notendur sem eru þarna úti enn. |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Bjórbókin fer á OKTOBERFEST -
bjórbókin 22.9.2004 |
|
Nú er hin árlega
oktoberfest
gengin í garð í Munchen og mun standa yfir til 3. október. Hátíð þessi
í Munchen er sú upprunanlega og hefur verið haldin núna síðan 1810.
Bjórbókin ásamt einum af góðkunningjum
hennar mun að sjálfsögðu bregða sér til borgar bjórsins og leggja sitt
mat á aðstæður og veigarnar. Bjórbókin verður ekki ein á ferð því
árlega leggja um 7 milljónir manna leið sína á þessa stærstu hátíð
veraldar. Árlega eru um 6.000.000 L af bjór skolað niður ásamt um
500.000 kjúklingabitum og 200.000 svínapylsum
(nánari tölfræði má finna hér). Öll
borgin er undirlögð en sjálft veislusvæðið er gríðarlega stórt og þar má
finna hin frægu
bjórtjöld þar sem íturvaxnar Olgur með fleiri tugi lítra bjórs þjóna
þyrstum líðnum til borðs. Þetta verður án efa fróðlegt! |
|
|
--------------- |
-------------------------------------------------------------------- |
 |
|
Bjór fyrir slökkviliðsmenn og
reykingafólk - bjórbókin 16.6.2004 |
|
Ég lét loksins vaða í einn af þessum þýsku
svokölluðu reykbjórum eða
Rauchbier. Stíll þessi er pínu
spes fyrir þær sakir að maltið er þurrkað yfir opnum eldi sem gerir það
að verkum að maltið tekur í sig mikið og sérstakt reykt bragð.
Aecht Schlenkerla Rauchbier er
mjög skrítinn bjór og reykurinn yfirgnæfandi í bragði og nefi. Fyrir
minn smekk er þetta allt of reyktur bjór, ég vil hafa mitt hangikjöt í
föstu formi en ekki fljótandi. Hins vegar gæti ég trúað því að þetta sé
góður bjór með grillmat eða reyktu kjöti
Reykingarmenn ættu hins vegar að kunna vel
við þennan bjór og hver veit nema hann gæti komið í stað tóbaksins fyrir
þá sem eru að reyna að hætta ? |
|
|
--------------- |
--------------------------------------------------------------------- |