web log free

Meira um jólabjórinn, nýjir á leiðinni

Já nú snýst allt um jólabjórinn.  Um að gera að kjósa þann besta hér.  Annars eru eftirtaldir á leið í Vínbúðina: Samuel Adams Winter Lager (USA), Anchor Christmas Ale 2011 (USA), Allgauer Weihnachtsbier (Þýskaland), De Koninck Winter (Belgía)

------------------

-----------------------------------------------------------------

Ölvisholt Jólabjórinn bestur árið 2011

Já nú höfum við hjá Bjórbókinni smakkað alla íslensku jólabjórana og valið bjórinn frá Ölvisholti sem þann besta.  Ástæðan er að hann er nettur og þægilegur, vel humlaður og með flottan jólakeim.  Nánar.
ATH Royal Xmash, Leppalúði og Tuborg voru með í þessu smakki

------------------

-----------------------------------------------------------------

Nokkrir nýjir Amerískir í bókina - 6.11.11

Tók mig til og setti inn nokkra ameríska dóma sem ég átti á blaði.  Uss maður þarf að fara komast í þetta aftur.  Þeir kunna þetta sko þessi amerísku örbrugghús.
Port Brewing Anniversary Ale, Shark Attack Double Red Ale, Hop 15, High Tide IPA.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Nýr bjór, Gæðingur Pale Ale - 19.10.11

3. bjórinn frá Gæðingi brugghús.  Gæðingur Pale Ale.  Flottur pale ale, mildur og þægilegur en þó með ögn hroka.  Kann ágætlega við þennan þó svo að stoutinn þeirra hafi verið betri.  Endilega að smakka mildan pale ale...aaaalíslenskan. Nánar

------------------

-----------------------------------------------------------------

Bríó fæst senn í ÁTVR! - 5.10.2011

Frábærar fréttir.  Innan skamms mun hinn frábæri og gríðarlega vinsæli Brío ekki bara fást á krana á Ölstofunni heldur einnig í vínbúðinni.  Þetta verða að teljast góðar fréttir fyrir t.d. menn eins og mig sem búa fjarri miðbænum og Ölstofunni.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Einstök Pale Ale - nýtt um allan heim!  26.9.2011

Nýr bjór Einstök Pale Ale hefur litið dagsins ljós á Íslandi.  Fleiri á leiðinni frá þessu Íslensk/Ameríska brugghúsi sem bruggar bjór sinn hér á Íslandi og sendir svo um allan heim.  Þessi pale ale er bara nokkuð nettur og tel ég að flestir eigi eftir að ráða vel við karl  Nánar.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Mikkeller bar - frábær staður í Köben - 25.9.11

Bjórbókin skoðaði hinn rómaða pöbb Mikkeller bar í Köben á dögunum.  Virkilega skemmtilegur staður með ofsalega mikið úrval af besta bjór veraldar.  Þetta er nánast skyldustopp fyrir alla sem leið eiga um Köben og kunna að meta bjór.  Nánar.

------------------

-----------------------------------------------------------------

La Trappe fagnar 125 árum - 6.9.2011

Ljúf nýjung frá La Trappe. Isid'or er afar þægilegt og ljúft klausturöl bruggað til minnis um upphafsmann La Trappe línunnar, Isidorus Laaber fyrir rúmum 125 árum síðan.  Endilega að prófa karlinn.  Svo er lika komin La Trappe Oak Aged, virkilega spennandi. Nánar

------------------

-----------------------------------------------------------------

Fuller's Vintage Ale, bara góður - 12.8.2011

Til eru nokkrir Fullers bjórar hér á landi. Þar á meðal afar snotur og vandaður bjór, Fuller's Vintage Ale sem er árgangsbjór af betri gerðinni.  Afskaplega ljúfur bjór sem hentar best á notarlegri stund t.d við arineldinn.  Bjórinn er svo breytilegur frá ári til árs, 2010 útgáfan er alla vega ljúffeng.

------------------

-----------------------------------------------------------------

DUVEL að koma aftur - 28.7.2011

Duvel, einn besti bjór Belgíu og víðar er á leið í hillurnar aftur eftir áralanga útlegð.  Skv innflytjanda er hans að vænta núna í ágúst.  Ég hvet menn sem ekki hafa smakkað þetta undur til þessa að næla sér í eintak þegar hann kemur.  Án efa einhver sem verður ástfanginn.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Einn besti hveitibjórinn kominn aftur 24.7.2011

Nú er Franziskaner kominn aftur en um er að ræða einn af bestu hveitibjórum veraldar að mati Bjórbókarinnar. Hann er gríðarlega ferskur og hentar vel á heitum sumardegi eða með sjávarfangi og sushi.  Verðlag er einnig hagstætt í vínbúðinni.  Nánar hér.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Mikkeller USAlive á Íslandi - 9.7.2011

Þessi er væntanlegur til Íslands á næstu dögum.  Um er að ræða öflugan bjór frá Mikkeller sem segja má að sé blanda af amerískum imperial IPA og belgískum Trappist.  Virkilega góður bjór.  Mun líklega kosta sitt hér á Íslandi en þá verður maður að hugsa um þetta eins og flösku af léttvíni sem leikandi fer upp í krónum

------------------

-----------------------------------------------------------------

Mikkeller bomba á leiðinni - 28.6.2011

Nú eru fleiri væntanlegir frá Mikkeller og ekki af verri endanum.  Við erum þegar komin með léttviktarkarla frá þeim, nú koma nokkrir frá hinum enda skalans.  Þar má t.d. nefna  Koppi og Gypsy Juice, fleiri verða svo nefndir til sögunnar hér innan skamms. Vonandi dettur þetta allt inn á næstunni!!!!

------------------

-----------------------------------------------------------------

Delirium Tremens, fæst í ÁTVR - 20.6.2011

Ég vil bara minna á þennan líka fína belgíska sterköl sem fæst hér í t.d. Heiðrúnu.  Ég tók hann í endurmat um daginn og líkaði vel.  Minnir dálítið á Duvel nema með meiri ávaxtakeim.  Um að gera að prófa eðla belga við tækifæri. Delirium Tremens

------------------

-----------------------------------------------------------------

Gæðingur, nýr íslenskur bjór - 13.5.2011

Nú hefur bóndi nokkur í Skagafirði bruggað og gefið út tvo nýja bjóra, Gæðingur stout og Gæðingur lager.  Stoutinn er mjög þægilegur en lagerinn þarf að skoða betur.  Mæli með að menn prófi þessa karla þegar þeir koma til RVK.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Íslendingar fá Mikkeller - 13.4.2011

Þann 1. maí koma tveir Mikkeller bjórar í ÁTVR til reynslu.  Mikkeller American Dream og Tjekket Pilsner. báðir ofsalega vandaðir bjórar frá þeim snillingum.  Svo er Mikkeller Cream Ale væntanlegur í sumar.  Þetta eru virkilega góðar fréttir.  Hvet menn til að smakka þetta.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Tveir góðir páskakarlar 27.3.2011

Það eru nokkrir íslenskir páskabjórar í boði þetta árið.  Bjórbókin smakkaði þá alla og þóttu Lilja frá Ölvisholti og Páska Bock frá Víking bestir.  Báðir eru þessi bjórar bragðmiklir og skemmtilegir.  Fyrir þá sem vilja mildari bjór þá er það páska kaldi eða víking páskabjór.  Ja eða bara eitthvað allt annað!

------------------

-----------------------------------------------------------------

Mikkeller Coffee IPA - 18.3.2011

Mikkeller er eitt af bestu brugghúsum veraldar.  Þeir gera nánast bara góðan bjór.  Hafði haft augun á þessum lengi, kaffi IPA frá þeim köppum.  Bjórinn er afar góður en minnir lítið á IPA, meira eins og Porter eða Stout.  Pínu vonbrigði þannig. Nánar!

------------------

-----------------------------------------------------------------

Ljómandi Porter - 13.3.2011

Porter er einn af þessum stílum sem ég læt oftast vera.  Tek þó einn og einn.  Þessi þekktir porter, Fullers London Porter var loks smakkaður í gær og viti menn um er að ræða virkilega ljúfengan drykk.  Mjúkur og mildur með fullt af súkkulaði....Páskabjór?  :)

------------------

-----------------------------------------------------------------

Ölvisholt reddar páskunum - 10.3.2011

Eftir að Þorrabjór Ölvisholts datt uppfyrir þetta árið sem var mjög leiðinlegt þá er gott til þess að vita að páskabjór er væntanlegur frá þeim.  Lilja mun hann heita og er 5.7% toppgerjaður bjór þurrhumlaður með hinum dásamlegu Amarillo og Cascade humlum.  Lýsingin lofar góðu.  Hlakka til að smakka..

------------------

-----------------------------------------------------------------

Bjartur kominn, bjór nr 4 frá Borg - 26.2.2011

Um að gera að smakka 4. bjór frá hinu frábæra örbrugghúsi Borg.  Bjartur heitir hann og stendur hann undir nafni. Bjartur og mildur með ögn ávaxtakeim í anda belgísks blond öls. Nánar

------------------

-----------------------------------------------------------------

Frábær bjór frá USA - aldrei aftur fáanlegur

Bjór þessi heitir hinu furðulega nafni Lukcy Basartd Ale og er dásamlegur amerískur imperial ipa.  Fyrir óglögga má benda á að nafnið er stafað undarlega en þetta á víst að vera svona.  Frábær bjór sem aðeins var framleiddur einu sinni.  Menn verða að drífa sig ef vilja smakka. Nánar

------------------

-----------------------------------------------------------------

Brot af Ameríku með heim.

Ég tók 4 ameríska bjóra með heim frá NY city.  Einn af þeim var þessi hér Rogue Doubla Mocha Porter.  Um er að ræða frábæran súkkulaði porter sem vægast sagt dekrar við líkama og sál. Nánar

------------------

-----------------------------------------------------------------

Þorrinn og þorrabjórarnir 28.1.2011

Nú gengur þorrinn í garð með sinn viðbjóðbjóðslega skemmta mat.  Það er þó eitt jákvætt fyrir utan konu og bóndadag.  Já það er bjórinn.  Flest íslensku brugghúsin brugga nefnilega sérstakan Þorrabjór.  Hér er dulítil samantekt á þessum drykkjum síðan í fyrra.  Mun koma með uppfærða útgáfu innan skams Nánar.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Úlfur, nýr bjór frá Borg brugghús 14.1.2011

Nú er biðin á enda, loksins er hann kominn, hinn frábæri alíslenski India Pale Ale Úlfur frá Borg brugghús.  Um er að ræða afskaplega ljúfan IPA.  Flottar látlausar umbúðir segja manni að innihaldið standi fyllilega fyrir sínu.  Allir að smakka þennan.
Nánar.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Sjaldgæft djásn í vínbúðinni 1.12.2010

Nú er einn af sjaldgæfu bjórum veraldar dottinn inn í Vínbúðina.  Um er að ræða einstakan belgískan kirsuberjabjór, Liefmans Kriek.  Alls ekki allra en eiginlega "möst" að smakka.  Flaskan kostar samt 1000 kr.  Mér skilst að aðeins séu til fáar flöskur. Svo eru komnir fleiri nýjir eðalbjórar í vínbúðina.

------------------

-----------------------------------------------------------------


Fullt af nýjum kræsingum í vínbúðinni - 3.12.2010

Nú eru margir frábærir bjórar komnir í vínbúðina góðu.  Allt frá sjaldgæfum belgískum ávaxtaperlum yfir í þungt alvöru amerískt barley wine.
Já ég hvet menn til að skoða þetta nánar.

Við erum að tala um 3 frábæra belgiska karla frá hinu rómaða belgíska Liefmans brugghúsi.  Um er að ræða sjaldgæfa ávaxtabjóra byggðum á lambic bjór (villigerjaður bjór).  Vil benda konum sérstaklega á Liefmans Fruitesse, alveg ljómandi ávaxtabjór fyrir byrjendur (nánar um mismunandi stíla hér).

Svo eru komnir Anchor Old Foghorn sem er magnaður amerískur barley wine og amerískur porter frá hinu flippaða ameríska örbrugghúsi Flying Dog, um er að ræða mjög öflugan bjór fyrir fólk sem ekki kallar allt ömmu sína.

Chimay blár er svo kominn aftur en það er alveg magnaður Trappist bjór frá Belgíu, bjór gerist varla betri og svo er það forboðni ávöxturinn frá Hoegaarden.  Gríðarlega skemmtilegt belgískt sterköl.

Frá Englandi koma svo tveir skemmtilegir, Wychwood Hobgoblin og Wychwood Scarecrow.  Hobgoblin er mikill bjór af gerðinni enskt sterköl.  Skemmtilegur bjór frá skemmtilegu brugghúsi.  Scarecrow er mun mildari bjór, enskt pale ale, mikið sætt malt, ljúf fylling og nettir þægilegir humlar.  Mæli sérstaklega með þessum.

Já svo er bara að hafa það bak við eyrun að þessir bjórar eru flestir í reynslusölu sem þýðir að þeir staldra líklega stutt við.....NEMA menn kaupi þetta.  Um að gera að smakka amk á þessu, víkka ögn sjóndeildarhringinn.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Nýr jólabjór að koma vel út - 26.11.2010

Frá Víking brugghúsi kemur nú nýr jólabjór.  Jólabock um er að ræða 3. bjór úr "eðallínu" Víkings.  Bjórinn fær hæstu einkunn þeirra jólabjóra sem eru á markað hér í dag og á þá einkunn fyllilega skilið.  Mjög góður bjór sem rennur út eins og heitar lummur í ÁTVR skilst mér.  Nánar hér.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Nú er jólabjórinn kominn í ÁTVR - 18.11.2010

Nú eru jólin byrjuð í ÁTVR. Jólabjórinn er kominn og ekki seinna vænna en að drífa sig að versla því venja er að þetta klárist löngu fyrir jól.  Bjórbókin mun smakka og meta bjórinn í ár og gefa svo út
sigurvegara innan skamms.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Frábær íslenskur pilsner - Bríó

Ég hvet menn og konur að smakka Bríó sem er framúrskarandi íslenskur pilsner frá brugghúsinu Borg.  Bjórinn fæst á Ölstofu Kormáks og Skjaldar.  Um er að ræða afar þægilegan og vandaðan pilsner.
Leisa meira.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Fuller's Bitter 7.11.2010

Ég ákvað að reyna þennan bjór, Fuller's Chiswick Bitter sem er enskur bitter.  Miðinn heillaði mig, allir þessir humlar.  Góður bjór, nettur og þægilegur en alls ekki nægilega humlaður fyrir minn smekk.
Lesa meira

------------------

-----------------------------------------------------------------

Jólin alveg að koma 22.10.2010

Bjórbókin tók forskot á sæluna og smakkaði jólabjórinn frá Bruggsmiðjunni í ár, Jólakalda.  Hafði aldrei smakkað hann.  Fékk sendingu frá þeim fyrir Norðan tveim dögum eftir átöppun.  Kom skemmtilega á óvart, klárlega besti bjórinn þeirra.
Lesa meira

------------------

-----------------------------------------------------------------

Forn perla enduruppgötvuð - 3.10.2010

Mundi allt í einu eftir þessari perlu þegar mér var boðinn þessi bjór um daginn.  Weihenstephaner hveitibjórinn frá elsta brugghúsi veraldar.  Gríðarlega góður hveitibjór sem að mínu mati er með betri hveitibjórum veraldar.  Fæst á Íslandi
Lesa meira hér

------------------

-----------------------------------------------------------------

Nýr indian pale ale (IPA) frá Borg brugghús
Fyrir skömmu smakkaði Bjórbókin væntanlegan IPA frá hinu litla örbrugghúsi Borg sem staðsett er innan veggja Ölgerðarinnar.  Um er að ræða gríðarlega vandaðan IPA.  Undirritaður verður að viðurkenna að bjórinn kom honum algjörlega í opna skjöldu.  Bjórinn hefur allt sem þarf í góðan bjór.  Bragðmikill, heilsteyptur, snarpur mjög, vel humlaður og gríðarlega góður.  Rúm 8% alkóhóls skemma svo ekki upplifunina því ekkert finnst í bragði en hitinn kemur upp um hann.

Þegar þessi er kominn á flöskur þá þori ég að segja að besti bjór sem Íslendingar hafa framleitt fyrir hinn almenna markað sé kominn í leitirnar.  Bjórbókin segir bara til hamingju Íslendingar, það verður loksins bærilegt að búa á Íslandi fyrir bjórnörda.

Bjór þessi fær klárlega 4.5 krúsir

------------------

-----------------------------------------------------------------
Læknavísindin tjá sig um bjórinn - 15.9.2010
Bjórbókin var með bjórfræðslu og smakk á Heilsugæslu hér í borg fyrir skömmu.  Karl K. Karlsson gaf bjórinn fyrir atburðinn.  Smakkaðir voru Skjálfti, Leffe Brune og Miklholts Papi. Bjórbókin vonar að tekist hafi að opna augu lækna stöðvarinnar.  Lesa meira hér

------------------

-----------------------------------------------------------------

Nýjir sælkerar á leiðinni - 14.9.2010

Bjórbókin hefur nokkuð traustar heimildir fyrir því að væntanlegir eru eftirfarandi í ÁTVR: 
Chimay Peres Trappistes, Chimay Triple, Meantime Chocolate, Left Hand Black Jack Porter, Left Hand Juju Ginger, Flying Dog Road Porter, Anchor Old Foghorn og Anchor Porter

------------------

-----------------------------------------------------------------

Nú er hægt að drekka Vatnajökul. 31.8.10

Vatnajökull er nýr bjór frá Ölvisholti.  Fæst reyndar aðeins á veitingastöðum í "Ríki Vatnajökuls" tímabundið.  Bruggaður úr um 1000 ára vatni úr jöklinum og svo er í þessu íslenskt blóðberg.
Nánar hér

------------------

-----------------------------------------------------------------
Nýr bjór frá Vífilfelli 19.8.2010

Þeir hjá Vífilfelli eru að koma með nýjan bjór af pilsner stíl.  Bjórinn hefur þá sérstöðu að hann er bruggaður eftir lífrænu ferli og í hann er aðeins notað lífrænt ræktað hráefni.  Bjórinn er einnig bara ansi ljúfur og vandaður.  Kemur í verslanir 1. sept.   Nánar hér

------------------

-----------------------------------------------------------------

Nýr bjór frá Miði væntanlegur  17.7.2010

Nú eru þeir hjá Miði ehf að brugga nýjan bjór sem þeir kalla Jökulhlaup. Hann er væntanlegur innan skamms.   Nánar hér

------------------

-----------------------------------------------------------------

Óbærilegt ástand á klakanum.  17.6.2010

Ísland er líklega mesta bjórhallæri veraldar, hér er nánast ekkert úrval og verðlag fáránlegt.  Í pistli þessum er ég að fá smá útrás fyrir reiði og örvæntingu.  Einnig bendi ég á hvað mér finnst vert að kaupa. Nánar hér

------------------

-----------------------------------------------------------------


Íslandshornið!

Hvað er að gerast á Íslandi?  16.6.2010

Bjórbókin minnir á Íslandshorn Bjórbókarinnar (sjá hér til hliðar.  Nú er eitthvað að gerast, nýjir karlar komnir inn.  Nefni t.d. hinn frábæra Duch Brown Ale. 

------------------

-----------------------------------------------------------------

Norðan Kaldi - nýr bjór.  7.5.2010

Nú eru þeir Bruggsmiðjumenn komnir með nýjan karl á markað.  Norðan Kalda kalla þeir hann. Sem fyrr nota þeri tékkneska humla en nú einni humla frá Nýja Sjálandi.  Það er von mín að hér verði skemmtilegur bjór á ferðinni með dulítið meiri humlakeim en hinir Kalda bjórarnir. 

------------------

-----------------------------------------------------------------

Páskabjór Ölvisholts, febrúar 2010

Nýr bjór í bókina, Páskabjór Ölvisholts, Miklhots Papi sem er súkkulaði porter.  Bjórinn kom á óvart, bara nokkuð nettur.

 Sjá nánar hér

------------------

-----------------------------------------------------------------

Síðasti bjór ársins 2009

Bjórbókin óskar öllum lesendum bókarinnar gleðilegs nýs árs með ósk um gott bjórár 2010. Á þessum tímamótum smakkar Bjórbókin nýjan bjór, Gouden Carolus Tripel sem er gríðarlega ljúfur belgískur tripel.  Sjá nánar hér

------------------

-----------------------------------------------------------------

Jólabjórinn kominn 14.10.2009

Já nú er jólabjórinn kominn í hillur um víða veröld og af nóg af taka víðast hvar.  Jólabjórinn á Íslandi er líka að detta inn og veit ég að Ölvisholt Jólabjórinn er kominn til byggða.  Svo kemur líklega eitthvað frá Bruggsmiðjunni og Miði vonandi.  Hér má lesa samantekt um hinu ýmsu jólabjóra.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Enn einn frá Mikkeller 24.10.2009

Það er kominn nýr lager frá Mikkeller, The American Dream.  Þetta er mjög skemmtilegur lager og alls ekki eitthvað sem menn eiga að venjast í lagergeiranum.  Þessi er með heilmikið bragð og karakter og dágóða skvettu af amerískum tónum.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Trúðabjór - Klovn! 13.9.09

Ég hef lengi verið mikill aðdáandi hinna dönsku Klovn þátta sem fjalla um aulann Frank Hvam og félaga.  Nú er kominn út bjór þessum þáttum til heiðurs og sá er bara nokkuð hressandi.  Klovn øl!

------------------

-----------------------------------------------------------------

Gríðarlega ljúfur bjór mokah - 1.8.09

Ég smakkaði í gær bjór sem sameinar þrjár af fjórum dásemdum lífsins, bjór, súkkulaði og kaffi, það fjórða verður ekki nefnt hér.  Bjórinn, Southern Tier Mokah Imperial Stout, var eftir væntingum fullkominn.  5 krúsir takk fyrir.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Náttúruvænn bjór en vondur - 17.7.2009

Ég ákvað að bragða á þessum nýja bjór frá einu uppáhalds brugghúsi mínu hér í DK, Nørrebro Bryghus. Bjórinn er bruggaður á vistvænan hátt, þ.e.a.s við framleiðslu hans sleppur ekki CO2 út í lofthjúpinn.  Bjórinn er hins vegar afleitur.

------------------

-----------------------------------------------------------------
Gefðu íslenskum bjór og krám einkunn hér!
Á Íslandshorninu okkar er nú hægt að fara inn og gefa íslenska bjórnum einkunn með stjörnugjöf.  Einnig er hægt að gefa íslenskum krám og veitingarhúsum stjörnur.  Taktu endilega þátt það er gaman að sjá álit almennings.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Bjór úr hægðum - 12.6.09

Stout unninn úr hægðum lítilla sætra dýra í Vietnam...hmm hljómar undarlega en er þó satt.  Já Mikkeller hafa skapað stout og notað dýrasta kaffi veraldar í hann.  Bjórinn er með betri stout sem ég hef bragðað verð ég að segja.  Hvort það sé vegna saurkaffis eða ekki veit ég ekki.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Mikkeller Barley Wine - 2.5.09

'Eg hef verið að fikta við bjórstílinn barley wine (bjórvín) öðru hvoru í gegnum tíðina.  Nú hef ég ákveðið að rannsaka þennan stíl betur því hér er greinilega um gríðarlega gómsætan bjórstíl að ræða.  Big Worse Barley Wine frá Mikkeller er engin undantekning. Hann er afskaplega ljúfur.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Þvílík snilld - 30.4.09

ÉG smakkaði um daginn annan risabjór frá Mikkeller og Three Floyds sem kallast Oatgoop.  Ég verð að segja að þó svo að flaskan hafi kostað 130 dkr þá var hún hverrar krónu virði.  Gríðarlega magnaður bjór.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Eitt af 7 undrum bjórveraldar - 29.3.09

Mér hlotnaðist sá heiður í dag að smakka á einum besta bjór veraldar...ja eða amk einum af mest efirsóttu bjórum veraldar.  Three Floyds/Mikkeller Hvedegoop.  Tvö bestu brugghús veraldar smíðuðu þennan bjór og bragðið ber þess berlega merki. Dásamlegt.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Aprílgabb - 2.4.09

Já vildi bara benda á að fréttin í gær um að ég væri með gefins bjór í Kringlunni var aprílgabb. Sumir hlupu meira að segja. Hins vegar neita ég ekki að hugmyndin er góð...þ.e.a.s. að fá Bruggsmiðjuna til að brugga bjórinn fyrir brugghúsið mitt nIcebrew og selja svo á Íslandi! Hver veit hvað gerist í framtíðinni?

------------------

-----------------------------------------------------------------

Skrímsli frá nIcebrew - bjórbókin 25.3.09

Þá er enn einn bjórinn kominn frá brugghúsinu mínu nIcebrew.  Já um er að ræða mjög sérstakan bjór sem í raun á sér engan stíl.  Þetta er gríðarlega skemmtilegur bjór og hressandi með þægilega beiskju, lakkrís og karamellu.  Nafnið er Three Headed Monster Ale.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Hræðileg upplifun - bjórbókin 13.3.09

Ég smakkaði nýjan bjór frá Hoegaarden og þvílíkan viðbjóð hef ég sjaldan sett inn fyrir mínar varir.  Hoegaarden Rosée er belgískur ávaxtabjór sem á að virka sem svalandi sumardrykkur fyrir kvenkynið.  Samsetningin er hins vegar engan vegin að virka.

------------------

-----------------------------------------------------------------

Warrior frá Mikkeller - bjórbókin 7.3.09

Hér er ég að smakka bjór nr tvö í mjög skemmtilegri seríu frá Mikkeller.  Serían er þannig gerð að bjórinn er bruggaður eins nema hvað að þeir skipta úr humlunum.  Í þennan bjór er t.d. notaður Warrior humallinn.  Þetta er  mjög skemmtilegur bjór. 

------------------

-----------------------------------------------------------------

Nýr íslenskur bjór - bjórbókin 1.3.09

Nýr mjög dulafullur bjór frá nIcebrew (mér) er tilbúinn á afmælisdegi bjórsins.  Já Monks Dirty Little Secret heitir karlinn og er 5. í röðinni.  Um er að ræða nokkuð vel lukkaðan munkabjór. Skoðið miðan vel.  Lesa nánar á heimasíðu nIcebrew.

------------------

-----------------------------------------------------------------

ELDRI FRÉTTIR HÉR