|
Þessi
bjór er seldur hér í DK sem eins konar jólabjór en í raun er
að hægt að kaupa hann fram á sumar. Þetta er ágætt öl en
þó vantar allt púður í hann ef svo má segja. Þetta á að
vera vetrarbjór sem þýðir að maður á að fá smá alkóhól til
að ylja sér við en þessi er bara 6.5% sem er aðeins örlítið
meira en hinn hefðbundni
De koninck. Mér finnst vanta pínu uppá
jólafílinginn í þessum bjór. Engu að síður góður karl sem
óhætt er að mæla með. Í nef hressandi ávaxtakeimur,
með gersvepp og sítrus og jafnvel málmkeim. Í munni
mildur, fullur og matmikill. Létt frúttaður með ögn
gersvepp. Nokkuð maltaður og brenndur sykur sérstaklega í
eftirbragði sem er sérstaklega ljúft og gefandi. Í
raun er eftirbragðið það besta við þennan bjór ummmm |