web log free Westvleteren 12
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
gamla bjórbók
 
 
 

Westvleteren abt 12

stíll : Trappist / Munkaöl - Abt
brugghús : Westvleteren
land : Belgía
alkóhól : 10.2%
fyrst smakkað : 2.07.2003
smökkunarstaður : Reykjavík!

Westvleteren er afar sérstakt brugghús, annars vegar vegna þess að þetta er eitt af Trappist brugghúsunum 6 og er því munkaklaustur en ekki hefðbundið brugghús og hins vegar er mjög erfitt að fá þennan bjór.  Árlega framleiða munkarnir aðeins nokkur bretti af bjór sínum sem menn verða að berjast um.  Allur bjór Westvleteren kemur í afar látlausum umbúðum sem bera enga merkimiða.  Aðeins tappinn aðgreinir þær 3 tegundir sem klaustrið hefur uppá að bjóða.  Westvleteren 12 er stekasti bjórinn þeirra með 10.2% alkóhól.  Þetta er rauðbrúnn bjór með mikla sæta rúgbrauðslykt í bland við þurrkaða ávexti og jafnvel hnetur.  Mikill í munni, öflugur og mjúkur með góða fyllingu.  M.a. má greina hnetur, þurrkaða sæta ávexti af suðrænum toga og svo sætt malt og sætan vínlegan keim.  Svakalegur bjór, þvílík gæði. Segja má að verðið (sem er dálítið hátt) endurspegli gæðin.