|
Ahh
enn eitt undrið úr smiðju munkanna, þessir kallar vita sko
hvað þeir eru að gera þegar að bjórnum kemur. Reyndar er
það svo sem ekki skrítið að bjór þeirra sé svona vandaður
þar sem þetta var áður það eina sem þessir karlar máttu
setja í sig í föstunni, þeir hafa því lagt sig alla fram við
að gera þetta eins gott og mögulegt er. Hið mikla alkóhól í
þessum munkabjórum er líklega til að kallarnir geta
auðveldlega flúið klausturlífið á (vín)andlegan hátt.
Dubbel þessi ilmar af sætu malti, eplum og sveskjum. Sopinn
liggur svo afar vel í munni, silkimjúkur eins og
Tripelinn þeirra og með þrusu fyllingu.
Mikill bjór með kaffisnefil, eplum örlitlu sætu malti,
rúsínum og gersvepp. Fjarar svo út með ljúfum eftirkeim.
Alveg prima með sterkum ostum! |