|
Bjór þessi er svartur lager frá
þýskalandi af gerðinni dunkel sem er þekktur þýskur stíll.
Í munni má finna mikið brennt malt með ögn kakókeim sem fjarar
út í svart kaffi. Fín fylling með gott eftirbragð
skemmir ekki fyrir. Humlar skína einnig í gegn með
upplífgandi karakter. Þetta er sem sagt fínn dunkel bjór
sem óhætt er að prófa hvenær sem er! |