web log free Wells Banana bread beer
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Charles Wells Banana Bread Beer

stíll :

Ávaxtabjór

brugghús :

Charles Wells

land :

England

alkóhól :

5,2 %

fyrst smakkað :

06.07.2005

smökkunarstaður :

Århus

Oft hefur bjórinn verið kallaður hið fljótandi brauð og er það þá oftast tilvísun í bjór þann er munkarnir "borðuðu" í föstunni á árum áður.  Hér hefur þessi samlíking hins vegar verið tekinn einu skrefi lengra.  Banana Bread Beer minnir nefnilega furðulega mikið á Bananabrauð í fljótandi formi. Í nefi er mikil og sterk bananalykt innvafin í ferskum humlum.  Kitlandi er hann á tungu og lifandi með þó nokkurn bananakeim í bland við hæfilega bitra humla.  Undir lok sopans er ögn brenndur ölkeimur eins og maður á von á í ensku öli. Gefur svo þægilegan og mjúkan eftirkeim sem minnir nokkuð á bananabrauð.  Fylling með ágætum.  Í heild afar skemmtilegur bjór og spennandi nammikarl.  Hentar vel sem fordrykkur eða jafnvel "eftirréttur" eftir góða máltíð.