|
Bjór þessi kemur frá elsta brugghúsi
veraldar sem enn er starfandi. Með 1000 ára sögu sinni
má nánast fullvissa sig um að gæðin ættu að vera í lagi.
Þeir hafa amk
haft
nægan tíma til að fullkomna bjórinn. Eins og svo oft
áður þá hófst saga Weihenstephan bjórsins í munkaklaustri
þýskra Benediktusarmunka. Bjórinn er hveitibjór og að
mínu mati einn af þeim allra bestu. Í nefi er þessi
klassíski gerkeimur í bland við þroskaðan banana og ögn perur.
Í munni fer ekki eins mikið fyrir banananum en hann er mildur,
gríðarlega ferskur eins og hveitibjór sæmir og dálítið
kryddaður. Bananar og perur eru vissulega til staðar.
Gríðarlega ferskur og ljúfur bjór sem fæst meira að segja á
Íslandi |