web log free Víking Þorrabjór
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Víking Þorrabjór

stíll :

Lager

brugghús :

Vífilfell

land :

Ísland

alkóhól :

5,1%

fyrst smakkað :

4.2.2011

smökkunarstaður :

Reykjavík

Víking er nýjasti þorrabjórinn þegar þetta er ritað en reyndar var þorrabjór fáanlegur frá Víking fyrir ansi mörgum árum síðan og líklega meðal fyrstu þorrabjóra.  Um er að ræða frekar klassískan lager.  Hann er nettur og fallegur í glasi.  Lykt einkennist af humlum, líklega tékkneskum og svo grasi sem svo oft loðir við lagerinn.  Í munni er hann spriklandi og hressandi með miklu gosi og meðalfyllingu.  Hann gerir þó ekki mikið fyrir harðgerða bragðlauka hins sanna bjórgúrú, mildur og nettur.  Væg beiskja og tærir humlar og hið sæmilegasta eftirbragð.  Um er að ræða einfaldan bjór fyrir flesta Íslendinga.  Hann er þó dálítið svipaður hinum venjulega lager, kannski ögn bragðmeiri samt.  Velkomin viðbót í fábrotna bjórflóru Íslendinga.  Mætti vera meira krassandi samt.