|
Nú er kominn nýr bjór í "eðallínu" Vífilfells.
Um er að ræða sömu línu og
Víking Stout tilheyrir.
Hér er kominn svo kallaður Pils Organic sem hefur þá
sérstöðu að vera bruggaður eftir lífrænt vottuðu
framleiðsluferli og auðvitað úr lífrænt ræktuðu
hráefni. Stíllinn er
Pilsner sem er svo sem
ekkert ofsalega spennandi ef maður er bara að eltast
við ölið (ale). Bjórinn er hins vegar
afar vandaður og fágaður. Kristal tær, humlar og
heytugga með ögn blómum í nefi. Spriklandi
gos, brakandi humlar, þægileg beiskja og meðal fylling
í munni. Bara afskaplega þægilegur og vel gerður
pilsner. Það eru vissulega margir pilsner bjórar
fáanlegir hér á landi en enginn íslenskur lífrænt
ræktaður bjór ef svo má segja. Þetta er því
frábær kostur vilji maður hugsa um jörðina sína og á
sama tíma fá góðan lager með matnum eða stakan með
snakkinu. |