web log free Víking Gylltur
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Víking Gylltur

stíll :

Lager

brugghús :

Vífilfell

land :

Ísland

alkóhól :

5,6%

fyrst smakkað :

fyrir mörgum mörgum árum

smökkunarstaður :

Reykjavík

Víking er gammall félagi sem kallar fram ljúfar minningar.  Hér er um að ræða snotran lager eins og hann gerist hvað bestur.  Já þetta er hreinn og tær bjór með fallega gullinn blæ í glasi og svona létta og sæmilega froðu.  Ilmur af ferskleika ásamt grösum og humlum.  Í munni er hann frískandi með mikið bragð og áberandi humlum sem skapa þægilega snerpu og biturleika.  Dálítil kolsýra og ágætis fylling er í þessum karli en þó er hann það léttur að auðvelt er að eiga við hann.  Sæmir sér vel með grillinu á heitum sumardegi eða sem hressandi fordrykkur fyrir ljúfan kvöldverð, svona rétt til að koma bragðlaukunum af stað.  Það er svo bara eitthvað svo tært og ferskt við þennan bjór, kannski er það íslenska vatnið? Já með betri lager bjórum Íslands.