web log free Víking Classic
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Víking Classic

stíll :

Lager

brugghús :

Vífilfell

land :

Ísland

alkóhól :

4,6%

fyrst smakkað :

26.9.2011

smökkunarstaður :

Reykjavík

Víking classic er nýr bjór frá Víking og er væntanlegur á markað í næsta mánuði þegar þetta er skrifað.  Um er að ræða aðeins upptunaða útfærslu af hinum létta lager þeirra.  Það mætti kannski kalla þetta svar Víking við Tuborg Classic? Hann er tær, koparlitaður og létt froða sem hverfur fljótt.  Nef, sæta, malt og smá sætur lakkrís, mjög spes.  Í munni mildur, gosríkur með meðalfyllingu.  Mjög einfaldur lager sem krefst ekki mikils af neytandanum.  Létt humlaður með væga beiskju sem er í góðu jafnvægi við maltið sem þó nær ögn yfirhöndinni meða karamellu og toffee.  Eftirbragð er ljúft og notalegt með dálítilli sætu.  Ekki neinn monsterbjór enda alls ekki ætlunin og menn verða að koma fram við hann eftir því.  Þetta er bjór sem gengur með vel flestum mat án þess að stela þrumunni.  Flottur nettur bjór fyrir þá sem vilja bara lagerinn sinn en með örlitlu kryddi í tilveruna.