web log free

Já hvað get ég sagt um mig?  Hmm ég heiti R.Freyr Rúnarsson og er þegar þetta er skrifað (4.03.2010) 35. ára gamall.  Ég hef mikið dálæti á góðum mat og drykkjum og er því miður allt of hrifinn af sælkeravarningi í því samhengi sem auðvitað kostar sitt.  Gott espresso er eins og ljúfur draumur og svo er það auðvitað ölið sem hefur hug minn allan eða svona nálægt því.  Ég er nýfluttur heim frá Danmörku ásamt konu og tveim börnum þar sem ég las við læknadeild háskólans í Árósum.  Vinn nú sem læknir á Heilsugæslustöð.  Áður hef ég svo lokið B.S. gráðu í Sameindalíffræði HÍ og má því kalla mig líffræðing veii! Auk þess að standa fyrir Bjórbókinni þá er ég einnig frumkvöðull og forsprakki Bjórmenningarfélgasins Kidda sem er eins og nafnið bendir til bjórfélag sem hefur það að markmiði að vekja okkur Íslendinga til meðvitundar um bjórinn og öllu því ljúfa sem bjórheimurinn hefur að bjóða.  Kiddi var stofnaður í Danmörku fyrir nokkrum árum en meðlimir félagsins eru einnig búsettir á Íslandi.  Kiddi vex ört úr grasi.
Já þetta var það helsta um mig.  Viljir þú senda mér línu t.d. til að benda mér á bjór eða bara skammast yfir lélegri einkunn þá má senda mér á bjor@bjorbok.net