web log free Borg Brugghús Úlfur
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Borg Úlfur (nr 3)

stíll :

India Pale Ale

brugghús :

Borg Brugghús

land :

Ísland

alkóhól :

5.9 %

fyrst smakkað :

30.9.2010

smökkunarstaður :

Reykjavík - Ölgerðin

Loksins loksins, alvöru íslenskur IPA. Já og ekkert slor, þessi er er vel í áttina að því að vera eins og þeir gerast bestir í þessum flokki.  Gríðarlega tær og fallegur í glasi með netta ljúfa froðu.  Í nefi eru humlar í aðalhlutverki eins og vera ber.  Þurrir klassískir líklega amarillo eða cascade humlar.  Í munni er hann svo dansandi og spriklandi.  Þéttpakkaður af humlum, beiskur eins og engill án þessa að kalla fram tár.  Líklega margur Íslendingurinn sem verður dálítið sjokkeraður, en svona er það bara, góður bjór þarf að vera ögn humlaður í raun finnst mér vanta meiri kraft í hann.. Ég er bara mjög lukkulegur með að nú er loksins kominn IPA á ísl markað.  Ég verð bara að segja það að þegar þetta er ritað þá er þetta einn BESTI íslenski bjórinn og tekur sér því sæti með Skjálfta á þeim stalli.