|
Tuborg
ákvað nýverið að koma til móts við öra þróun í öl
málum í Danmörku og skapaði tvo nýja bjóra sem eiga
að brúa bilið frá hinum venjulega lager yfir í
sérölið sem sætir mikilla vinsælda í landinu um
þessar mundir. Þetta er gott framtak en fyrir
mína parta þá er hér um sorglega stutta brú að ræða.
Blái Tuborg er öllu meiri bjór en sá hvíti en þó
mjög nálægt því að vera bara venjulegur Tuborg.
Hann er þó ögn dökkur með humlum og ögn karamellu
tón en svo þetta einkennandi ullarbragð sem oft
loðir við Tuborg. Sá hvíti er mjög mildur og
léttur og maður tekur vart eftir honum. Með
blómakeim í nefi og í munni og afar einfaldur á
tungu. Hentar hvað best sem sumarbjór á heitum
sumardegi. Já ég er lítt hrifinn og hef litla
trú á að þessir karlar nái tilsettum sölutölum.
Frekar kýs ég Tuborg Classic t.d. |