|
Loksins
kom Carslberg með hinn rauða Tubba aftur á markað
eftir miklar umræður og sáran söknuð. Nú er hann kominn aftur og
menn halda vart vatni yfir því. Þetta er
annars fallegur bjór, rauður í glasi og dálítið
elegant. Þægilegur í munni, mildur með léttum
sætum maltkeim og örlítilli beiskju og kannski ögn
karamella ég veit ekki samt. En annars bara ágætur
karl og ansi mildur og í raun voðalega lítið
frábrugðinn Tuborg græna. Ágætt eftirbragð með
léttri beiskju en reyndar líka einhverjum fúkka
humalkeim. Ég er nú frekar lítið fyrir Tuborg
yfir höfuð eins og menn vita og þessi bjór
breytir þeirri skoðun minni ekkert. Kom mér í
raun á óvart hversu látlaus þessi bjór er. |