|
Þennan
þekkja allir, Tuborg jóla! Hingað til hef ég
verið lítið spenntur fyrir honum, fannst þó ágætt að
fá mér ískaldan á krana þegar ég var búsettur í
Danmörku. Þetta er klassískur jólalager og
þægilegur bara.
Það sem er hins vegar nýtt núna er að bjórinn ku vera
bruggaður alveg frá grunni hér á Íslandi í fyrsta sinn
þetta árið (2011). Danirnir sjálfir völdu þennan
bjór meira að segja framyfir sinn danska. Já ég
smakkaði hann aftur og viti menn, ég var bara nokkuð
sáttur. Miðað við sinn flokk, lager þá er þetta
nokkuð góður bjór. Koparlitaður, með humla og
ögn ristað malt í nefi. Í munni er fín fylling,
brakandi humlar sem láta ögn vita af sér og svo
einhver ljúf sæta sem heldur áfram inn í eftirbragðið.
Afar þægilegur og hreinn bjór. Gæti alveg vel
tekið aftur í þennan....áfram Ísland. |