web log free Gales Trafalgar 200
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Gales Trafalgar 200

stíll :

Old Ale (gamalt öl)

brugghús :

George Gales & Co

land :

England

alkóhól :

10.0%

fyrst smakkað :

16.09.2005

smökkunarstaður :

Árósar

Bjór þessi sem er Old Ale (sérkennilegur stíll) er bruggaður í tilefni sigurs Nelsons á Napoleon við Trafalgar fyrir um 200 árum síðan.  Sigurinn hrakti Frakka frá Englandi og undirstrikaði jafnframt yfirburði Englendinga á sjó.  Gales Trafalgar 200 er enn í dag bruggaður á sama máta og á dögum Nelsons. Þessi bjór hentar afar vel til geymslu og á þá að liggja á hlið.  Í glasi er bjórinn líkt og þykkni, appelsínugult eða bleikt að lit.  Mattur og virðist alveg flatur að sjá og froðulaus með öllu. Eiginlega frekar óaðlaðandi að sjá.  Nefið er þó mun jákvæðara með gríðarlega áberandi gráfíkjum og ekkert annað.  Í munni er um afar mikinn bjór að ræða, sterkan og með sætan frúttaðan vínlegan keim en svo er hann einnig ögn súr eða eins og grape.  Afar ljúft, sætt og langt eftirbragð með sítrónu á tungu og svo gráfíkjum. 10% gefa ljúfan hita um allan skrokkinn.  Spennandi bjór en skrítinn!