|
Thule
er íslenskur lager bjór sem hefur sætt mikilla
vinsælda á Íslandi undanfarin ár. Hér er líka
um þægilegan og góðan lager að ræða. Það er
ekkert flókið við þennan bjór, ekkert vesen, ekkert
rugl, þetta er bara bjór sem býður uppá það sem menn
reikna með að fá. Léttur, frískandi bjór
sem þó hefur ágætis fyllingu og hið ágætasta
eftirbragð. Thule er einni skemmtilegur fyrir
þær sakir að hann fæst í 500 ml gleri. Þetta
er þambari eða "session" bjór eins og sagt er sem
passar fínt með í tjaldferðina eða í bústaðinn.
Hvað get ég sagt meira um þennan bjór. Ég er
jú alltaf meira fyrir ölið (ale) en lager hefur sín
tilefni og þá dugar þessi bara vel til slíks. |