|
Langþráður
draumur orðinn að veruleika þegar ég smakkaði loksins
þennan draumakarl frá besta brugghúsi veraldar mörg ár
í röð. Dreadnaught er 9.5% Imperial IPA af
bestur gerð og ég verð að segja þetta smakk fer inn í
bækurnar sem eitt af 3 bestu smakkupplifunum
Bjórbókarinnar. Bjórinn er mattur með fallega froðu.
Upp úr glasinu stígur dásamleg töfralykt full af
þurrum sítrus humlum, hunangi, ferskjum, karamellu og
sætu malti. Í munni er hann virkilega magnaður,
eiginlega svo magnaður að lýsingar væru nánast móðgun.
Heilmikill samtvinnungur af humlum sem taka vel í.
Það er góður, fullkominn skrokkur með malttónum og
karamellu í bakgrunni. Laaaaangt og ofsalega
notalegt og gott eftirbragð. Já þrátt fyrir
miklar væntingar og um 5 ára bið eftir að smakka þá
fær þessi bjór mína bestu einkunn og ég skil vel
afhverju Three Floyds er besta brugghús veraldar. |