|
Þetta
furðulega fyrirbæri verður að teljast einn af þeim merkilegri
sem ég hef smakkað þegar þetta er ritað. Bjór þessi sem aðeins er bruggaður í
takmörkuðu upplagi ár hvert er sér í lagi vel til þess fallinn
að geyma og tala menn um upp í allt að 25 ár í þeim efnum.
Í glasi er þetta stórmerkilegur karl, hnausþykkur og minnir
helst á apríkósuþykkni, mattur og gjörsamlega laus við froðuna
og gos. Í nefi má merkja afskaplega kjarnmikla lykt sem minnir
á amaretto eða PÚRTVÍN (sætur vínlegur
appelsínukeimur). Þetta er flatur bjór en er þó ekki
truflandi. Einhver biturleiki læðist fram og rífur í
tungu og blæs lífi í sopann. Þetta er geysilega
þróttmikill bjór með vínlegan karakter og minnir á einhvern
líkjör eða, eins og í nefi, púrtvín. Töluvert þurr á
tungu en afar mjúkur og fyllir ágætlega. Ögn
grapefílingur til staðar og svo humlar og malt í bakgrunni.
Alkóhólið læðist svo að manni í lokin en er ekki til ama. |