|
Hér
er á ferð einhver ofur jólabjór ef marka má nafnið. Þetta er
belgískur kall hvað annað og kemur í afar fallegum umbúðum og
lokaður með korktappa eins og eðal öli sæmir. Í munni er
þetta afar léttur bjór og gæti komið vel sem þambari, mildur
og vottar ekki fyrir þessum 9%. Að mínu mati er þetta ekki
hentugur huggubjór á kvöldu síðkvöldi því slíkur bjór þarf að
vera matarmeiri og bragðsterkari. Í raun á ég bágt með að
greina bragð því það er ekki mikið af því en það vottar fyrir
humlum og ögn frútti og berjum. Smá malt, ekki brenndur og
þægilega gosríkur. Það er svo ekkert sem maður tengir
sérstaklega við jólin. Í heild sinni er þetta hinn ágætasti
bjór en er samt ekkert neinn OFUR bjór, hentar vel á jammið
kannski í kringum áramótin. |