web log free Stone Lucky Bastard Ale
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Stone Brewing's Lukcy Basartd Ale

stíll :

Imperial IPA

brugghús :

Stone Brewing Co

land :

Bandaríkin

alkóhól :

8.5 %

fyrst smakkað :

25.02.2011

smökkunarstaður :

Reykjavík

Bjórinn er frá frábæru og ört vaxandi brugghúsi í Californiu sem stofnað var 1996.  Lucky Bastard er nýjasti bjórinn úr svo kallaðri bastard línu frá þeim.  Það er ekki prentvilla í nafninu það á að vera svona stafarugl.  Tók sjálfur ekki eftir þessu strax.  Bjór þessi er aðeins framleiddur í eitt skipti og svo ekki aftur sem er svekkjandi þar sem um framúrskarandi India Pale Ale er að ræða.  Í nefi eru heilmiklir humlar og ristað malt, ögn kaffi jafnvel og sæta.  Í munni er hann furðulega maltmikill og ristaður miðað við IPA.  Humlar koma hins vegar í ótrúlega vel stilltu jafnvægi á móti og ná að rífa dálítið í.    Lakkrís, kaffi og beiskja og dásamlegt eftirbragð.  Nammi namm.  Mikil fylling og góð mýkt.  Það er klárlega sorglegt að maður á aldrei eftir að smakka þennan snilla aftur :(