web log free Stone IPA
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Stone Brewing India Pale Ale

stíll :

IPA

brugghús :

Stone Brewing Co

land :

Bandaríkin

alkóhól :

6.9 %

fyrst smakkað :

24.1.2011

smökkunarstaður :

New York

Stone er eitt af mörgum vinsælum örbrugghúsum Bandaríkjanna sem er að gera það gott.  Ég hef áður smakkað dásamlegan Imperial IPA frá þeim köppum.  Þessi er eins og amerískir IPA gerast hvað bestir.  Afar ljúfur, með fullt af humlum í nefi og skrokk.  Þurr á tungu, sítrus og blóm.  Sætt malt með og ljúf fylling.  Maður getur drukkið endalaust af þessum körlum.  Þessi karl er svo einnig þurrhumlaður sem þýðir að humlum er bætt út í bjórinn eftir að suðu lýkur.  Með því móti haldast olíur úr humlunum í bjórnum sem þannig öðlast hinn ljúfa humalangann.  Lyktarhumlar eða aroma humlar gefa lítið í bragðið. 
Stone brugghúsið er eitt af þeim brugghúsum sem maður ætti endilega að prófa ef færi gefst, þeir kunna klárlega tökin á þessu.