|
Þetta
er bjór sem ég hafði geymt í hálft ár til að drekka yfir
jólin. Eftirvæntingin var því orðin ansi mikil. Í nefi má
finna sterka lykt með eplum og ávöxtum og ögn möndlum . Í
munni er þetta mikill massi með sterkt bragð og mikla
fyllingu. Þetta er ljúfur mjúkur kall með "brúnu" bragði ef
maður getur sagt svo og pínu sætur keimur og svo þurrkaðir
ávextir. Fyrst þegar ég
smakkaði þennan bjór varð ég fyrir miklum vonbrigðum en svo
smakkaði ég hann aftur á
RisRas
okt 2003 og þá var sko aldeilis annað uppá teningnum. Þetta
er einfaldlega frábært eintak frá Belgíu og jólin eru alveg
gulltryggð með þennan við hönd. Þetta er 9% bjór en
alkóhólið kemur furðu lítið fram í bragði en maður upplifir
það þó í öllum líkamanum sem hita. Smellpassar fyrir
svefninn eftir hamagang aðfangadagskvölds! Besti
kranabjór og besti
jólabjór veraldar!!! |