|
Hér er á ferð
þýskur lager af stílnum
Mars/Oktoberfestbjór.
Hátíðarbjór þessi er borinn fram á hinni árlegu Oktoberfest
hátíð í Þýskalndi og er oftast sá bjór sem er fyrstur tappaður
af tunnunum þar og þar með opnar hátíðina. Spaten
brugghúsið er sögulegt brugghús því um miðja 19. öld var það
fyrsta brugghúsið til að brugga lager sem þá var velkomin
tilbreyting frá ölinu sem var þá það eina sem menn þekktu.
Lager sá var reyndar svartur en engu að síður lager.
Bjór þessi er afar bragðmikill og býður bragðlaukunum verðugt verkefni. Fylling er
mjög góð og eftirbragð langt og þægilegt. Ögn sætur
hunangskeimur á tungu en snarpir "krispí" humlar koma samt vel inn á móti sætunni og
"stabilisera" bragðið og svo finnst mér eins og ég
finni ögn lopakeim. Alkóhólið er í efri
kantinum en hæfir vel árstíðinni þar sem veður fer kólnandi. |