web log free Southern Tier Unearthly IPA
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Southern Tier Unearthly IPA

stíll :

Imperial Indian Pale Ale

brugghús :

Southern Tier

land :

Bandaríkin

alkóhól :

11. %

fyrst smakkað :

9.09.2009

smökkunarstaður :

Arósar

Southern Tier er amerískt brugghús sem hingað til hefur ekki brugðist mér.   Hér er á ferð gríðarlega gómsætur bjór sem kom mér algjörlega í opna skjöldu þegar ég prófaði hann.  Þetta er svo mikill bjór að flaskan nötraði öll og iðaði af þrótti og lífi.  Þegar maður svo opnar flöskuna ryðst út þessi líka dásamlegi og margslungni keimur fullur af gómsætum efnasamböndum.  Eik, karamlella, grös, humlar, vanilla og annað dásamlegt.  Það er í raun erfitt að átta sig á þessu.  Í munni er þetta fullskrokka karl. mjúkur sem silki og þéttpakkaður og flókinn.  Hér vottar ekkert fyrir 11% alkóhóls.  Beiskja er miðlungs, bragð er mikið, humlar, vanilla eða toffee karamella.  Svakalegur bjór, svakalegur og eftirbragðið varir svo lengi að maður nýtur bragðsins veeel og lengi.  Fullkomið!