|
Ég
rak augun í þennan í dag í BILKA. Þetta virðist vera
nýr bjór frá nýlegu brugghúsi hér í Danmörku, Skovlyst
Brugghús. Þeir eru með amk 3 í hillunum, Hafrastát,
Birkebryg (pilsner) og þennan India Pale Ale. Þegar
betur er að gáð þá hefur einmitt þessi IPA unnið til
verðlauna hér í landi, besti IPA ársins (líklega 2008).
Bjórinn er bruggaður úr heilum 5 tegundum af humlum.
Mjög spennandi. Í stuttu máli stenst þessi IPA
fyllilega væntingar mínar og gott betur. Það sem mér
fannst einkenna bjórinn var gríðarleg mýkt og fylling.
Bjórinn liggur eins og rjómi í gómi. Í nefi er þessi
beiski humlaði keimur ásamt sítrus og blómum. Í munni
er greinilega um IPA að ræða, ölkeimur, beiskir humlar en
einnig ristað þétt malt í miklu jafnvægi. Blóm og hnetur
koma einnig við sögu. Fylling er með eindæmum góð og svo
kemur ljúft langt eftirbragð þrungið humlum. Já með
betri IPA. |