web log free Skovlyst Birke Bryg
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Skovlyst  Birke Bryg

stíll : Pilsner
brugghús : Skovlyst Bryggeri
land : Danmörk
alkóhól : 5.2 %
fyrst smakkað : 21.8.2008
smökkunarstaður : Árósar

Þetta virðist vera snilldar brugghús þetta Skovlyst brugghús því þetta er bjór nr tvö sem ég smakka frá þeim og hann er einfaldlega með betri lager sem ég hef smakkað. Hann raðar sér á stall með New York Lager frá Nørrebro og Kronenbourg frá Brasserie Kronenbourg. Já þetta er glæsilegur bjór, gylltur og tær með mjúka froðu sem varir talsvert lengi. Í nefi eru svo sem engin undur og stórmerki að gerast, ögn humlar og blóm en í munni er þetta mjúkur og fullur bjór. Nammi namm. Það er kolsýra sem hressir bætir og kætir, svo má finna beiska brakandi humla, blóm, krydd og maltað bygg. Svo er einhver dularfullur sætur keimur í bakgrunni. Eftirbragð er svo langt og ljúft sem þrungið er humlum, malti og sætum keim.  Allt tvinnast þetta saman í vel lukkaða heild sem skapar dásamlega upplifun fyrir allflest skilningarvit.  Þetta er bjór sem ég mun án efa bjóða þyrstum ferðalöngum sem til mín koma!