|
Ég
hef einu sinni áður smakkað bjór frá þessu bandaríska
brugghúsi, sá hét Bigfoot Ale.
Ég get nú ekki sagt að ég hafi verið ánægður með hann
en ég held ég þurfi að gefa honum annan séns núna
eftir að laukar hafa þroskast og allt það. Þessi
hér er amk gríðarlega góður. Pale Ale sem þýðir
að hann er dálítið í átt að IPA stílnum. Í glasi
kopar-litaður með létta froðu.
Í nefi ögn sætur keimur í bland við bitra Cascade
humla og krydd og svo finn ég smá píputóbak? Í munni
er bjórinn skemmtilega mjúkur og með mikla fyllingu.
Beiskur með þægilegum sætum blæ frá ristuðu maltinu.
Ögn sykraður eða karamella og svo sítrus beiska frá
Cascade humlunum. Mjög skemmtilegur bjór |