web log free Samuel Adams Summer Ale
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Samuel Adams Summer Ale

stíll :

Hveitibjór

brugghús :

Boston Beer Company

land :

Bandaríkin

alkóhól :

5.6 %

fyrst smakkað :

12.07.2008

smökkunarstaður :

Reykjavík

Það er gaman að því hve margir af bjórum Samuel Adams eru að dúkka upp hér á Íslandi.  Það er líka gaman að því hve þetta brugghús dekkar vel hinar ýmsu árstíðir og hátíðar.  Jólabjór, vetrarbjór, sumarbjór, oktoberfestbjór og svona mætti lengi telja.  Hér er einmitt sumaröl á ferð.  Þetta er léttur og fallegur bjór með fína netta froðu.  Eins og áður virðist vera um eh. sambland af öli (ale) og lager að ræða, þ.e.a.s öl sem samt er svo milt að það minnir á lager.  Í nefi er léttur keimur, ögn ull og humall.  Í munni er bjórinn brakandi og kitlandi.  Hann er léttur, mildur með ögn sítrusbylgju, þó ekki frúttaður.  Ögn gerkeimur og hveiti.  Skemmtilegur sumarbjór með lagertón en þó meira en bara innantómur lager.  Fylling er létt og eftirbragð stutt.