web log free Samuel Adams Boston Lager
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Samuel Adams Boston Lager

stíll :

Lager

brugghús :

Boston Beer Company

land :

Bandaríkin

alkóhól :

4.8 %

fyrst smakkað :

25.09.2000 - endurmat 10.09.2005

smökkunarstaður :

Reykjavík

Ég hef tekið eftir því hér á umræðunni að menn halda ekki vatni fyrir þessum karli.  Þetta á að vera svona hel**** fínn session bjór.  Verð að viðurkenna að fyrst þegar ég smakkaði kauða þá fékk hann heldur betur falleinkunn.  Síðan þá hefur hins vegar margt ölið runnið til maga og bragðlaukar vonandi stálpast ögn.  Í dag get ég óhætt sagt að segja að þetta sé mikill bjór og ekki að skortir bragð.  Af lager að vera þá er þetta sko aldeilis ekki "dull" bjór og hann hefur mikinn persónuleika ef svo má segja.  Minnir ansi mikið á öl en er þó með hinn "krispy" humlaða lagerkeim.  Fylling er líka fín og það er jafnvel ögn frútt í kauða.  Bara hinn fínasti lager!  Get alveg mælt með þessum fyrir þá sem vilja bragð af bjórnum sínum en þora ekki út í ölið.