|
Kolsvartur
í glasi með létta þunna froðu sem hverfur fljótt.
Nefið fær sinn skerf af sætu malti og karamellu.
Í munni er sopinn ljúfur, mildur, mjúkur með sætum
tón. Gosríkur og ögn súkkulaði og púðursykur en
þó mjög vægt. Alls ekki væminn. Einnig má finna
ristað malt og mjög milda humla sem dansa saman létta
sveiflu. Þetta er dálítið í anda hinna þýsku
svartbjóra (Schwartz Bier) en þó ekki eins ákafur eins
og þeir eru venjulega. Minnir reyndar líka mikið á
brúnöl (Brown Ale). Samuel Adams Black Lager er
skemmtilegt dæmi um svartan bjór sem er þó lager.
Venjulega tengja menn svarta eða dökka bjóra við öl
(ale) og bendla þeim oftast við Guinnes sem er stout
og því allt annað fyrirbæri. Hér er um lager að
ræða sem er mjög fjarri hinum þunga stout stíl.
Skemmtilegur bjór |