|
Royal
Red er nýr meðlimur Royal fjölskyldunnar og er tileinkaður
sumrinu. Þetta er ægifagur bjór, dimmrauður og tær með
léttbleika froðu. Í munni er hér ljúfur og mildur karl á
ferð með ögn sætu á tungu. Humlar og beiskja eru í
lágmarki og fylling hæfileg. Í bakgrunni má svo greina
léttan sólberjatón. Já þetta er fínn "session" fyrir sumarið,
þ.e.a.s bjór sem hægt er að drekka í miklu magni á skömmum
tíma. Hættir þó til að verða of mikið af því góða til
lengdar og jafnvel væminn. Annars er alltaf gaman þegar
brugghús taka sig til og koma með nýjar vörur fyrir okkur að
gæða okkur á og þetta var afar vel hepnað framtak. Vona
að þessi skili sér heim á klakkann en annars fæst hann í
flestum verslunum hér í Danmörku. Njótið vel! |