|
Þeir
hjá Ceres eru duglegir við að koma með nýjungar. Í
fyrra var það hveitibjórinn
Royal Weiss
og árið þar á undan rauði sælkerinn
Royal Red. Nú er það þetta fína brúnöl. Í
glasi er bjórinn rauðbrúnn með hvíta fína froðu. Í
nefi má finna sætt malt og karamellu. Í munni er .etta mjög
léttur,mildur og gómsætur bjór með sætum keim af malti í
bland við toffee og karamellu. Fín kolsýra, létt fylling og
þægilegur bjór með góðum eftirkeim. Þetta er sem sagt
léttur og hressandi bjór sem kannski ekki alveg lýsir
stílnum brúnöli eins og vera ber. Samt sem áður góð
"dönsk" útgáfa af þessum stíl og óhætt er að mæla með honum.
Ég mun amk án efa bjóða gestum mínum uppá þennan endrum og
eins, amk í stað Tuborgs og
Carslbergs. |