|
Þetta er bara hefðbuninn þýskur lager af
pilsner stíl. Ástæða þess að maður valdi þennan er
einfaldlega að prófa local bjórinn. Hef lítið um bjórinn að
segja nema kannski það að gæði bjórsins fellur ekki alveg við
fegurð Rothenburgar sem er óaðfinnanleg. Þetta er annars
dálítið bragðmikill bjór sem hverfur manni fljótt úr minnum.
Humlar eru í aðalhlutverki og skapa "krispí" og brakandi bjór
með þægilegri beiskju sem fjarar út í sætt malt
sem varir skammt. Létt beiskja í hliðum tungu og í kinnum. Fylling
er í meðallagi og eftirbragð skammt. Fínn snarlbjór í
þeim skilningi að hann skyggir ekki á mat af ýmsum toga.
Í nefi má svo greina humla og smára eða gras.
|