|
Batemans
er lítið fjölskyldubrugghús sem bruggað hefur bjór í
Englandi síðan 1874. Brugghúsið bruggar nokkrar
mismunandi tegundir sem henta við mismunandi árstíðir.
Rosey Nosey er jólabjórinn þeirra. Hann er fallega
rósrauður eins og jólabjór sæmir með netta froðu sem þó
hverfur snöggt. Mildur í nefi með sætum ávaxtakeim jafnvel
rúsínur? Á tungu er Rosey Nosey mildur en bragðmikill, ögn
hnetaður (nutty) og með brakandi humlum sem þó halda sig á
mottunni en gefa þægilega beiskju. Sætt malt kemur inn í
góðu jafnvægi við humla. Mjög góð fylling og
afskaplega gott og þægilegt eftirbragð þar sem m.a. má finna
brenndar möndlur hmm? Allt í allt mjög góður og
þægilegur bjór sem á vel við jólasteikina. |