|

Eg kippti þessum með frá New York í upphafi árs enda
flaskan alveg ómótstæðileg, blá, stór og frá Rogue
auðvitað. Um er að ræða svakalegan súkkulaði porter
frá þessu frábæra ameríska örbrugghúsi. Í nefi
er heilmikið af súkkulaði, vanillu og ögn kaffi.
Í munni er þetta mikill bjór sem lætur ófriðlega.
Kaffi og súkkulaði í fullkomnu jafnvægi og svo er hann
þægilega brenndur og með nettum humlum í bakgrunni.
Maður finnur aflið í þessum, í samsetningunni en
vínandinn verður aldrei ofaná. Gríðarlega ljúfur
porter hér á ferð, eitthvað sem ég myndi klárlega
sækjast eftir aftur á ferðum mínum
.
Mæli einnig með
Rogue Ded Guy
Ale og
Rogue
Hazelnut Brown Nectar frá sama brugghúsi. |