web log free Ravnsborg Rød
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Ravnsborg Rød

stíll :

Írskt rauðöl

brugghús :

Nørrebro Bryghus

land :

Danmörk

alkóhól :

5.5 %

fyrst smakkað :

21.05.2006

smökkunarstaður :

Árósar

Það er svo dæmalaust gaman þegar bjór kemur manni gjörsamlega á óvart.  Þannig var það einmitt með þennan.  Ég bjóst við lélegri danskri eftirlíkingu af hinum belgíska kriek en svo mætir manni þessi dásamlegi mjöður.  Í glasi rauður og mattur með litla eða enga froðu.  Úr glasinu dansar svo seiðandi sætur kryddaður og margslunginn keimur sem minnir ekkert á kriek eða kirsuber. Fyrsti sopinn ýtir hressilega við bragðlaukunum og fær þá til að kalla á meira.  Þetta er mjúkur og fullur bjór með þægilegan maltkeim  og létta beiskju sem tvinnast inn í sætt maltið.  Sopinn fjarar svo út með léttri beiskju og mýkt og karamellu alveg í blá restina.  Það er svo glöggt hægt að greina einkennandi bragð af þessum bjór sem líkast til stafar af geri hússins (grape keimur).